sumar2013
Skráðu þig hér!
3. Landsmót UMFÍ 50+27. Landsmót UMFÍ16. Unglingalandsmót UMFÍImage Map

september24
Ungmennabúðir NSU 30.nóvember – 4.desember 2012 í Danmörku

nsu-logo„Nordic Youth Innovation Camp“ er fyrir þá sem eru á aldrinum 18-30 ára, virkir í ungmennafélags hreyfingunni  og hafa löngun til að efla sig í starfi. Ungmennabúðirnar eru á vegum NSU ( Nordiske Samorganisation for Ungdomsarbejde) sem UMFÍ er aðili að.

Þú færð einstakt tækifæri til að vinna með 50 öðrum ungmennum á norðurlöndunum að skapandi verkefnum og góðum hugmyndum fyrir framtíðina. Í ungmennabúðunum eru þér sköpuð tækifæri til að hugsa skapandi og vinna með öðrum að góðum hugmyndum til að vinna enn frekar með þegar þú kemur heim í þitt samfélag.

Ungmennabúðirnar standa yfir frá 30. nóvember til 4. desember. Fyrstu 3 dagana vinnur þú með hinum 50 sem taka þátt þar sem áherslan verður á nýsköpun, sköpun, áhrif ungs fólk á og í samtökum. NSU tryggir að þú fáir faglega og félagslega reynslu sem nýtist þér í gegnum vinnuferlið.

Síðustu tveimur dögunum verður svo lokað með stórri ráðstefnu þar sem þátttakendur í ungmennabúðunum fá tækifæri til að kynna niðurstöður sínar fyrir stjórnmálamönnum, vísindamönnum og starfsamönnum hinna ýmsu samtaka sem vinna með málefni ungmenna.

Ungmennabúðirnar og ráðstefnan gefur þér tækifæri til að hafa áhrif á ákvarðanir sem snerta ungt fólk á Norðurlöndum.  Ungmennabúðirnar og ráðstefnan er þér að kostnaðarlausu með öllu.  UMFÍ fær úthlutað plássi fyrir sex ungmenni sem verða fulltrúar Íslands í ungmennabúðum.

Ef þú hefur frekari spurningar þá vinsamlegast hafðu samband við Sabínu á netfanginu sabina@umfi.is eða hringdu í síma 569-2929. Einnig má finna upplýsingar á heimasíðu NSU www.nsu.is . Umsóknarfrestur er til 8.október næstkomandi.

Deila fréttinni

year: 2013 + month: 5
maí 2013
2013-5 = 2013-55|2013
2013-5 = 2013-55|2013
2013-5 = 2013-4
22 maí 2013
Ársþing HSV

Fréttir sambandsaðila

Grindavík - Keflavík á laugardag kl. 14:00-
17.05.2013

Laugardaginn 18. maí hefst keppnistímabilið hjá kvennaliði Keflavíkur og fyrsta verkefnið er leikur í 1. umferð Borgunarbikarsins. Andstæðingarnir eru nágrannar okkar í Gri ...

Riðlar í Landsmóti STÍ-
17.05.2013

http://keflavik.is/skot/files/skotdeild/landsmot-sti-18-19-mai.pdf

SFF veitir verðlaun fyrir veturinn-
15.05.2013

Vetrarstarfi Skíðafélags Fjarðabyggðar lauk formlega í síðustu viku þegar iðkendur og foreldrar gerðu sér glaðan dag á Reyðarfirði. Farið var í leiki og síðan grillaðar pylsur á eftir.

Góður árangur austfirsks glímufólks á EM í glímu-
15.05.2013

Glímufólk frá UÍA átti þrjá af þrettán Evrópumeisturum á EM í glímu sem haldið var í lok apríl. Magnús Karl Ásmundsson, Sindri Freyr Jónsson og Eva Dögg Jóhannsdóttir unnu sína flokka og Hjörtur Elí Steindórsson náði öðru sæti í sínum flokki.

Stefnumótandi ráðstefna um landsmót UMFÍ-
15.05.2013

Laugardaginn 11. maí sl. var haldin á Húsavík stefnumótandi ráðstefna um landsmót Ungmennafélags Íslands. Var þar fjallað um flest allt er snertir landsmót UMFÍ þ.e. stóra Landsmótið, Unglingalandsmótið og Landsmót 50+. Ráðstefnan tókst mjög vel en unnið var í sex vinnuhópum. Allir hóparnir fjölluðu um mótin þrjú og skilaði hver hópur fyrir sig áliti. Var þetta liður í umfjöllun um mótin innan hreyfingarinnar.

Á sambandsráðsfundi UMFÍ, sem haldinn var á Kirkjubæjarklaustri haustið 2012, lagði HSK fram tillögu um að að halda stefnumótandi ráðstefnu um landsmótin. Var tillagan samþykkt og skipuð nefnd sem sá um undirbúning ráðstefnunnar. Örn Guðnason, varaformaður HSK, átti sæti í undirbúningsnefndinni. Guðríður Aadnegard, formaður HSK, og Örn Guðnason, varaformaður HSK, sóttu ráðstefnuna á Húsavík fyrir hönd HSK.

Mynd: Örn Guðnason var einn framsögumanna á ráðstefnunni.

Selfoss vann alla flokka á héraðsmótinu í fimleikum-
15.05.2013

Seinnihluti fimleikamóts HSK var haldinn sunnudaginn 5. maí 2013 í Vallaskóla á Selfossi. Keppendur frá þremur aðildarfélögum HSK mættu til leiks. Selfoss, Þór Þorlákshöfn og Hamar Hveragerði.

Keppt var í 3., 2., 1., meistaraflokki og opnum flokki. Selfoss var sigurvegari í öllum flokkum.

Úrslit má sjá hér á síðunni.

1

Köll eftir umsóknum

untitled

50_plus_untitled

ulm_untitled

lmuntitled

Unglingalandsmót
Landsmót
Landsmót
Göngum um Ísland
Leiðtogaskólinn
Frjálsíþróttaskólinn
Forvarnadagurinn
Ungmenna- og tómstundabúðir
Evrópa unga fólksins
Æskulýðsvettvangurinn
isafold

Sambandsaðilar