sumar2013
Skráðu þig hér!
3. Landsmót UMFÍ 50+27. Landsmót UMFÍ16. Unglingalandsmót UMFÍImage Map

Fréttir

maí22

Sérgreinastjórar á 27. Landsmóti UMFÍ sem haldið verður á Selfossi 4.-7. júlí nk. komu saman til fundar í Selinu á miðvikudaginn í síðustu viku. Mjög góð mæting var á fundinum en þar var farið yfir ýmis atriði varðandi undirbúning mótsins.

Deila fréttinni Meira

maí21

Fjölnishlaupið verður haldið í 25. sinn næstkomandi fimmtudagskvöld og verða hlauparar ræstir klukkan 20. Vegalengdir í hlaupinu eru 10 km með flögutímatöku og 1,4 km skemmtiskokk með handtímatöku. Hlaupið er ræst frá Fjölnisvellinum við Grafarvogslaug og göngustígur hlaupinn út

Deila fréttinni Meira

maí20

Tómstundaleiðbeinandi hefur m.a. umsjón með þremur námskeiðum sem kennd eru ásamt því að sinna frístundarstarfi að námskeiðum loknum. Hæfniskröfur: Leiðtogahæfileikar með áherslu á frumkvæði, sveigjanleika, jákvætt viðmót, samskiptafærni og skipulögð vinnubrögð. Reynsla í starfi með unglingum. Hreint sakavottorð. Háskólamenntun

Deila fréttinni Meira

maí17

Ungmennavika NSU (Nordiske Samorganisation for Ungdomsarbejde) Panorama of Youth – verður haldin á Sólheimum dagana 1.-8.júlí nk. Þema vikunnar er víðsýni, samvinna, traust og umburðarlyndi en þessa þætti verður unnið með í gegnum íþróttir og leik. Markmiðið er að auka víðsýni þátttakenda fyrir ólíkum einstaklingum og auka umburðarlyndi fyrir

Deila fréttinni Meira

maí17

Í dag var í Þjónustumiðstöð UMFÍ í Reykjavík skrifað undir styrktarsamninga við átta fyrirtæki vegna 3. Landsmóts UMFÍ 50+ sem haldið verður í Vík í Mýrdal dagana 7.-9. júní í sumar. Aðalstyrktaraðilar Landsmóts UMFÍ 50+ eru Eirberg, Toyota, Flugger, Sölufélag garðyrkjumanna, Saga Medica, Ölgerðin, Icewear, Mennta- og menningarmálaráðuneytið og

Deila fréttinni Meira

maí17

Vormót HSK í frjálsum íþróttum verður haldið sunnudaginn 19. maí, hvítasunnudag, á Selfossvelli og hefst það kl. 13:00. Upphitun hefst kl. 12:00. Þetta er fyrsta mótið af sex í mótaröð FRÍ fyrir sumarið 2013. Keppt verður í 19 greinum

Deila fréttinni Meira

year: 2012 + month: 10
október 2012
2012-10 = 2012-1010|2012
22 maí 2013
Ársþing HSV

Fréttir sambandsaðila

Áttundi þingmaður Suðurkjördæmis kom fyrstur í mark-
22.05.2013

<p> Vormót HSK fór fram á Selfossvelli 19. maí s.l. Mótið var fyrsta mót sumarsins og jafnframt hið fyrsta af sex í mótaröð FRÍ árið 2013. Keppt var í 19 greinum á mótinu. Rigning var, kalt og nokkur vindur sem hafði áhrif til hins verra í hlaupa- og stökkgreinum. Góður árangur náðist þó í kastgreinum mótsins. Örn Davíðsson úr FH náði sínum öðrum besta árangri frá upphafi, er hann kastaði 72,32 m. Hann á best 75,96 m frá því í fyrra. Hilmar Örn Jónsson úr ÍR hélt áfram að bæta árangur sinn í sleggjukasti. Á þessu móti í fyrra kastaði hann sleggjunni 55,67 m, en nú á fyrsta móti ársins náði hann að kasta 55,93 m. Þetta er jafnframt besti árangur Íslendings í þessum aldursflokki með 7,26 kg sleggju. Hann á best 71,05 m með 5 kg sleggjunni, sem er áhaldið sem keppt er með í hans aldursflokki 16-17 ára. Hilmar Örn sigraði einnig í kúluvarpi í sínum aldursflokki með 17,22 m, en hann á best 17,52 kg. Stefán Velemir úr ÍR stórbætti svo árangur sinn í kúluvarpi (6 kg) er hann kastaði 15,32 m en átti best áður 13,51 m.</p> <p> Í öðrum greinum bar hæst árangur nýkjörins þingmanns okkar Sunnlendinga, Haraldar Einarssonar, en hann hóf keppnistímabil sitt á ágætum tíma í 100 m hlaupi, þar sem hann sigraði á 11,33 sek. Halli vann einnig 300 m hlaupið. Í 100 m hlaupi kvenna sigraði Irma Gunnarsdóttir Breiðabliki á 12,59 sek. Hún sigraði einnig í langstökki með 5,21 m. Í 300 m hlaupi kom Vilhelmína Þóra Óskarsdóttir Fjölni fyrst í mark á 46,92 sek. Í 110 m grindahlaupi karla bar Ólafur Guðmundsson Laugdælum sigur úr bítum á 16,68 sek og í 100 m grindahlaupi kvenna vann Kristín Birna Ólafsdóttir á ágætum tíma, 14,88 sek. Í hástökki karla stökk Hreinn Heiðar Jóhannsson Laugdælum hæst eða 1,80 m og Hulda Þorsteinsdóttir ÍR í hástökki kvenna 1,50 m. Í þrístökki karla stökk Bjarni Már Ólafsson Vöku 13,67 m og sigraði. Í köstunum var eins og áður segir ágætur árangur. Í spjótkasti kvenna náði heimamanneskjan Anna Pálsdóttir Selfossi ágætu sigurkasti er hún þeytti spjótinu 34,05 m. Í kringlukasti kvenna sigraði Kristín Karlsdóttir Breiðabliki með 31,01 m en þar voru heimamenn stutt á eftir. Í kúluvarpi karla varpaði Kristján Viktor Kristjánsson Breiðabliki lengst allra, 14,08 m. Í 3000 m hlaupi kvenna kom Helga Elíasdóttir fyrst í mark á tímanum 11:48,45 mín en í 800 m hlaupi karla sigraði Sigurður Páll Sveinbjörnsson Selfossi á 2:34,32 mín.</p> <p> Sigurvegarar í keppnisgreinum mótsins fengu gullverðlaunapening en svo voru 10 sigurvegarar af 19 á mótinu dregnir út og fengu þeir verðlaun frá Frjálsíþróttasambandinu, út að borða fyrir tvo á Saffran veitingahúsi í Reykjavík. Aðalstyrktaraðili mótaraðar FRÍ er Prentmet hraðþjónusta.</p> <p> <em>Ólafur Guðmundsson</em></p>

Tap fyrir norðan-
22.05.2013

Víkingar töpuðu fyrir norðanÞrátt fyrir að vera öllu sterkara liðið á Þórsvellinum á Akureyri í gær tókst Víkingum ekki að ná stigi úr leiknum og urðu að sætta sig við 1:0 tap. Víkingar eru því stigalausir eftir fyrstu fjórar umferðirnar í Pepsídeildinni og á botnum ásamt hinu Vesturlandsliðinu, ÍA, sem fær tækifæri til að breyta stöðunni í kvöld þegar Framarar koma í heimsókn á Akranesvöll. Leikurinn á Þórsvellinum einkenndist af baráttu milli teiganna á illa grónum vellinum eftir vetrarríkið fyrir norðan. Færi voru fá og fyrri hálfleikur leið án þess að til tíðinda drægi. Þórsarar komust svo yfir þegar tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleiknum. Kom markið eftir mikinn atgang í teignum. "Við vorum ekki nógu grimmir upp við markið og því fór sem fór," sagði Guðmundur Steinn Hafsteinsson framherji Víkinga eftir leikinn og Ejup Purisevic þjálfari Víkings sagði að liðið hefði verðskuldað meira úr þessu leik. Leikur liðsins hefði verið ágætur og vörnin aðeins bilað í hálfa mínútu og það reynst dýrkeypt. Víkinga bíður næst það verkefni í Pepsídeildinni að mæta ÍBV í Eyjum nk. sunnudag.

Framkvæmdir hjá Skotgrund-
22.05.2013

FramkvæmdafréttirMikið er um að vera hjá Skotgrund þessa dagana hvað framkvæmdir varðar. Búið er að kaupa lyklabox til að setja utan á félagshúsnæðið, staura og girðingaefni, málningu o.fl. Birgir og Steini Gun fengu gefins stóran vatnstank sem þeir eru að smíða vagn undir, en hann á að sjá okkur fyrir vatni í félagshúsnæðið þar sem ekkert vatn er á svæðinu. Búið er að hafa samband við skiltagerð um að búa til skilti fyrir okkur á svæðið, en þau eru í hönnun. Einnig er verið að skera út stafi félagsins og er ætlunin að setja upp nafn félagsins utan á félagshúsnæðið. Gummi er búinn að yfirfara ljósavélina, rafvirki hefur verið fenginn til að yfirfara kastvélarnar og strákarnir í Ólafsvík eru að hanna nýja riffilbatta. Í dag fékk félagið gefins dekk frá KB bílaverkstæði og er ætlunin að steypa girðingastaurana fasta í dekkin, því ekki er hægt að reka niður staura á æfingasvæðinu. Dekkin verða svo grafin niður undir yfirborðið. Almenna umhverfisþjónustan ehf. ætlar að steypa fyrir okkur staurana í dekkin og er reiknað með því að það verði gert á morgun. Það ætti því að vera hægt að fara að mála og girða mjög fljótlega. Hægt verður að fylgjast með framgangi framkvæmda hér á heimasíðunni. Staurarnir og dekkin tilbúin fyrir steypu. Skrifað af JPTengill á færslu

Ingunn, Sara, Bryndís, Pálína og Magnús í landsliðið-
22.05.2013

Þjálfarar A-landsliðanna í körfubolta hafa valið þá 12 leikmenn sem munu leika fyrir Íslands hönd á Smáþjóðaleikunum sem hefjast í 26. maí n& ...

Kastmót UFA-
21.05.2013

Kastmót UFA verður haldið á Þórsvellinum n.k. fimmtudag 23.maí Mótið hefst kl 17:30 og verður keppt í kastgreinum en einnig ýmsum hlaupa- og stökkgreinum þrátt fyrir að mótið heiti kastmót! Nánari uppl. og skráning er á mótaforriti fri

Rannveig Íslandsmeistari í víðavangshlaupi-
21.05.2013

Rannveig Oddsdóttir sigraði í kvennaflokki í Viðavangshlaupi Íslands sem fram fór þann 11.maí í Laugadalnum. Rannveig hljóp á 26:34mín. Kári Steinn Karlsson kom fyrstur í mark í karlaflokki. Góð þátttaka var í hlaupinu en alls luku 103 keppni.

1

Köll eftir umsóknum

  untitled

50_plus_untitled

ulm_untitled

  lmuntitled

  


 
 
laugar
Tómstundaleiðbeinandi (kvk) óskast í Ungmenna- og tómstundabúðirnar Laugum í Sælingadal


 

Unglingalandsmót
Landsmót
Landsmót
Göngum um Ísland
Leiðtogaskólinn
Frjálsíþróttaskólinn
Forvarnadagurinn
Ungmenna- og tómstundabúðir
Evrópa unga fólksins
Æskulýðsvettvangurinn
isafold

Sambandsaðilar