Hafdís Sigurðardóttir, frjálsíþróttakona úr Ungmennafélagi Akureyrar, bætti í kvöld 10 ára gamalt Íslandsmet Sunnu Gestsdóttur, UMSS. Í langstökki á móti sem fram fór á Akureyri. Raunar tvíbætti Hafdís Íslandsmetið, fyrra stökkið var 6,31 metrar og í lokastökkinu stökk hún 6,36 metra.
Deila fréttinni Meira












































