Fyrirkomulag keppni á Landsmóti UMFÍ 50 + í
Mosfellsbæ helgina 8. - 10. júní 2012
Álafosshlaup
Allir geta tekið þátt í þessu hlaupi, skokki, göngu. Keppt er í flokkum 15 ára og yngri, 16 – 49 ára og 50 ára og eldri
Hlaupið verður frá Álafossi um austursvæði Mosfellsbæjar.
Vegalengd
9 km
Nánari lýsing (undirbúningur hlauparans)
Leitast er við að velja merktar hlaupaleiðir, en samt óvenjulegar. T.d. göngustígar, stokkið yfir læk, slóði og malarvegur. Á brattann að sækja fyrri helming síðan er farinn malarvegur eða malbik niður í mót. Drykkir verða veittir í hlaupi og við endamark fyrir alla.
7 tindahlaupið
Hlaupið er utanvega um fjöll, heiðar og dali í bæjarlandi Mosfellsbæjar og komið aftur í mark við Varmá. Leiðin er merkt með skærlitum flöggum og spreyi á göngustígum auk þess sem mannaðir póstar eru við valin svæði. Björgunarsveitavakt er á öllum tindum þar sem hlauparar eru taldir í gegn. Hægt verður að leita aðstoðar hjá björgunarsveitamönnum sé þess þörf.
Þátttakendur verða að vera komnir að íþróttamiðstöðinni að Varmá minnst 30 mínútum fyrir hlaup/göngu til að fá númer. Afhending númera hefst klukkan 8. Hægt er að skrá sig á staðnum frá kl. 8 til kl. 10.
VEGALENGDIR SEM BOÐIÐ ER UPP Á 2012 ERU:
7 TINDAR HLAUP – 37 KM.
5 TINDAR HLAUP – 34 KM.
3 TINDAR HLAUP – 19 KM
NÝTT
1 TINDAR HLAUP – 12 KM.
3 TINDAR GANGA – 19 KM.
1 TINDAR GANGA – 12 KM.
Badminton
Spilaðir eru einliða- og tvíliðakeppni karla og kvenna og tvenndarleikur. Keppt er í opnum flokki.
Blak
Keppt verður í kk og kvk flokki. Nethæð í kvk flokki verður öldungamótsnethæð: 2.18m og í karlaflokki einnig öldungamótshæð: 2.35m Spilað verður upp á 2 unnar hrinur og oddahrinu upp í 15.
Boccía
Keppnislið eru skipuð konum / körlum eða blönduð. Hvert lið er skipað þremur einstaklingum og einum til vara. Spilað er í riðlum og fer það lið áfram í úrslit er flesta vinninga hlýtur. Verði tvö lið jöfn að stigum ræður innbyrðisleikur þeirra hvort liðið fer áfram.
Bridds
Keppt í opnum flokki, fjórir til sex skipa sveit. Spiluð er 56 spil, sjö átta spila leikir, eftir monradkerfi.
Frjálsar
Keppt er samkvæmt reglum og flokkaskiptingu FRÍ. Keppt er í flokkum kvenna og karla sem hér segir: 50 – 54, 55 – 59, 60 – 64, 65 – 69, 70 – 74, 75 – 79, 80 – 84, 85 – 89, 90 ára og eldri. Keppnisgreinar eru: kringlukast, spjótkast, kúluvarp, lóð, langstökk, hástökk, stangastökk, 100m hlaup, 800m hlaup,
Golf
Flokkaskipting
Konur: 50 til 64 ára. Leika á rauðum teigum. (Höggleikur án forgjafar og Punktakeppni)
Konur: 65 ára og eldri. Leika á rauðum teigum. (Punktakeppni)
Karlar: 50 til 69 ára. Leika á gulum teigum. (Höggleikur án forgjafar og Punktakeppni)
Karlar: 70 ára og eldri. Leika á rauðum teigum. (Punktakeppni)
Golfklúbburinn Kjölur – Hlíðavöllur Mosfellsbæ
Fyrirkomulag: Höggleikur og punktakeppni.
Ef keppendur eru jafnir í verðlaunasæti í höggleik án forgjafar skal leika bráðabana. Ef keppendur eru jafnir í punktakeppni er talið til baka. Þannig að sá er ofar sem hefur fleiri punkta á seinni 9 holunum, ef enn er jafnt þá síðustu 6, því næst síðustu 3 og að lokum er síðasta holan borin saman. Dugi þetta ekki til sker hlutkesti úr um sæti.
Hámark 200 keppendur geta tekið þátt í golfi
Pútt
Spilaðar verða 18 holur í púttmóti. (2x9 holur) einstaklingskeppni karla og kvenna.
Hámark 150 keppendur
Hestaíþróttir
Keppt er samkvæmt reglum Hestaíþróttasambandsins og er keppnin einstaklings-keppni á jafnræðisgrunni. Keppnisgreinar eru: tölt, fjór- og fimmgangur.
Hringdansar leikfimi
Hringdansar verða á dagskrá á Landsmóti UMFÍ 50+
Valdir haf verið 5 dansar úr bókinni Dansk senior dans sem gefin er út af Landssambandi Danskra seniordansara sem eru í Danska íþróttasambandinu.
Dansarnir eru:
Nr. 5 Djacko kola ( Fimman ) frá Júgóslavíu
Nr. 4 Þriðji maðurinn frá Ameríku
Nr. 7 Flugan frá Ameríku
Nr. 9 Dilli dó –mars- frá Ameríku
Nr. 24 Vefarinn frá Danmörku
Hver hópur myndar sinn hring og getur útfært dansinn eins og hentar hverjum hóp, gert hann einfaldari eða notað smá „triks“ til að skreyta með. Búningar verða dökkar buxur og T-bolur í lit, þannig að hver hópur velur sinn lit og verður hópunum raðað á völlinn þannig að litaflóran verði sem best. Sýningin verður á aðalleikvanginum ef veður leifir eða í íþróttahúsinu.
UMSK hefur látið fjölrita lýsingar á dönsunum, cd disk með músik og dvd disk með video af dönsunum. Hægt er að nálsagt diskana á þjónustu miðstöð UMFÍ að Sigtúni 42.
Knattspyrna
Keppt verið í fimm manna bolta og spilað á velli sem er ¼ með miðlungs stórum mörkum.
Kraftlyftingar
Keppt verður í öllum þremur greinum kraftlyftinga, hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu.
Karlar:
Aldursflokkar:
Öldungaflokkur 2 (M2): 50 - 59 ára
Öldungaflokkur 3 (M3): 60 - 69 ára
Öldungaflokkur 4 (M4): 70 + ára
Þyngdarflokkar:
-59 kg
-66 kg
-74 kg
-83 kg
-93 kg
-105 kg
-120 kg
+ 120 kg
Konur:
Aldursflokkar
Öldungaflokkur 2 (M2): 50 - 59 ára
Öldungaflokkur 3 (M3): 60 + ára
Þyngdarflokkar
-47 kg
-52 kg
-57 kg
-63 kg
-72 kg
-84 kg
+84 kg
Línudans
Keppni í línudönsum er hópakeppni. Hópur telst 5 einstaklingar eða fleiri.
Ekki er gert ráð fyrir að þurfa að takmarka stærð hópa en mótshaldara er
heimilt að setja reglur í þessu efni.
• Keppt skal í einum aldurshóp 50 +.
• Keppt skal í tveimur dönsum sem hóparnir velja sjálfir og þurfa dansarnir að
vera til skráðir á viðurkenndu formi ef þess er óskað.
• Dansað skal að hámarki 2 mínútur í hvorum dansi.
• Dómarar skulu vera 3 að lámarki.
• Dómarar skulu gefa einkunn fyrir tónlist og dans.
• Keppendareglur.
• Hendur keppenda mega ekki snerta gólf
• Keppendur mega ekki fara í splitt.
• Spörk mega ekki fara fyrir ofan mjaðmahæð.
• Gæta skal hófs í klæðnaði þ.e.a.s. keppnisfatnaður þarf að vera samstæður og
snyrtilegur, með eða án hatta.
Til athugunar
Öll neysla áfengis og eða annarra vímugjafa er stranglega bönnuð við og á danskeppnum og varðar brot á þessari reglu brottvísun úr keppni og brottvísun af keppnisstað.
Mótanefnd átelur sér rétt til að endurskoða frávik sem upp koma ef fjöldi í hóp nær ekki lágmarks fjölda t.d. vegna veikinda.
Keppt er í flokki kvenna og karla .Opinn flokkur
Pútt
Spilaður verður 18 holuleikur, 9 x 2, einstaklingskeppni karla og kvenna: Einnig er sveitarkeppni þar sem fjórir skipa lið.
Ringó
Ringókeppni verður opin fyrir allan aldur. Liðin mega vera blönduð af báðum kynnum.
Skák
Keppt í flokki kvenna og karla eftir monradkerfi. Opinn flokkur
Starfsíþróttir
Pönnukökubakstur - dæmt eftir harða, bragði, útliti, fjölda og frágang. Keppandi leggur til uppskrift í þremur eintökum og efni í bakstur (150 g hveiti, eitt egg) og hefur 15 mín til verksins. Mótsaðili leggur til rafmagnshellur. Keppanda er heimilt að koma með eigin pönnu, spaða, ausu og áhald til að hræra deigið með ekki er heimilt að nota rafmagnsþeytara. Keppandi skilar 10 pönnukökum upp rúlluðum með sykri, hinum tvíbrotnum í horn.
Spurnigakeppni úr Laxnes - Keppendur fá 10 -15 spurningar úr Laxnes til að svar.
Strandblak
Keppt verður í kk og kvk flokki og skulu liðin vera skipuð 3 leikmönnum.Spilað upp á 2 unnar hrinur.
Sýningar / Leikfimi
Ákveðið er að hafa sýningar fyrir leikfimi - og danshópa. Sýningin hefur fengið vinnuheitið "Sumar í Mosó" þar koma fram dans - og leikfimishópar með fjölbreytt atriði. Hver hópur hefur 3 - 5 mín. Fyrir sitt atriði og getur komið inn oftar en einu sinni. Reynt verður að byggja sýninguna upp í "kabarett" stíl hvað varðar innkomu hópanna. Gaman væri ef skrautlegir búningar settu svip á sýninguna.
Sund
Keppt er samkvæmt reglum og flokkaskiptingu SSÍ. Keppt er í flokkum kvenna og karla sem hér segir: 50 – 54, 55 – 59, 60 – 64, 65 – 69, 70 – 74, 75 – 79, 80 – 84, 85 – 89, 90 ára og eldri. Keppnisgreinar eru: 50 m skrið, 50 m baksund, 100 m bringusund, 100 m fjórsund, 400 m skriðsund. Einnig er keppt í 4 x 50 m boðsundi frjálsaðferð opinn flokkur 50 ára og eldri, hver sveit skal skipuð 2 konum og 2 körlum.
Þríþraut
Keppt er í opnum flokki, kvenna og karla, hópkeppni þar sem hópurinn er skipaður þremur einstaklingum. Þríþrautin er 400 m sund, ca 12 km hjólreiðar, og um það bil 2,5 km hlaup.
Deila fréttinni Meira






