Annað Landsmót UMFÍ 50 + verður haldið í Mosfellsbæ helgina 8. – 10. júní 2012. Mótið hefst á föstudegi og lýkur á sunnudegi. Mótið er fjölskylduhátíð með fjölbreyttri dagskrá. Ásamt keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum verða fyrirlestrar og sýningahópar. Allir, jafnt ungir sem eldri, eiga að finna eitthvað við sitt hæfi þessa helgi sem mótið fer fram.
Mótshaldari
Ungmennasamband Kjalarnesþings (UMSK) er mótshaldari að Landsmóti UMFÍ 50 + árið 2012. UMSK heldur mótið í góðu samstarfi við Mosfellsbæ.
Aðstaða í Mosfellsbæ er öll til fyrirmyndar fyrir Landsmót UMFÍ 50 +. Mosfellsbær rekur íþróttamiðstöð að Varmá, á Tungubökkum í Lækjarhlíð en þar er íþróttahús og sundlaug. Að Varmá eru þrír íþróttasalir, karatesalur, knattspyrnuvöllur í fullri stærð, gervigrasvöllur í fullri stærð, 7 manna gervigrasvöllur, hlaupabraut og sundlaug auk allrar búningsaðstöðu. Á Tungubökkum eru grasvellir og búningsaðstaða. Góður gólfvöllur sem og aðstaða fyrir pútt er í Mosfellsbæ. Einnig er reiðhöll í Mosfellsbæ og stutt í skólahúsnæði frá Varmá sem verður notað helgina sem Landsmótið fer fram.
Keppnisgreinar á mótinu eru:
Badminton - Blak - Boccia - Bidds - Frjálsar - Golf - Álafosshlaup - Hestaíþróttir - Knattspyrna - Kraftlyftingar - Leikfimi dans - Línudans - Pútt - Ringó - Skák - Sund - Starfsíþróttir - Strandblak - Hringdansar - Þríþraut.
Deila fréttinni Meira






