Frjálsíþróttaskóli UMFÍ verður starfræktur í fimmta sinn í sumar og verður skólinn á fimm stöðum víðs vegar um landið. Námskeiðin verða á Laugum í Reykjadal, Egilsstöðum, Sauðárkróki, Borgarnesi og á Selfossi.
Frjálsíþróttaskólinn er ætlaður ungmennum á aldrinum 11 – 18 ára. Ungmennin koma saman á hádegi á mánudegi en skólanum lýkur á hádegi á föstudegi í sömu viku. Aðaláhersla er lögð á kennslu í frjálsum íþróttum.
Auk frjálsra íþrótta er farið í sund, leiki, óvissuferðir og haldnar kvöldvökur. Ungmennin borga þáttökugjald en innifalið í því er kennsla, fæði og gisting.
Allar nánari upplýsingar og skráning fer fram á heimasíðu skólans /umfi09/veftre/verkefni/ithrottir/frjalsithrottaskoli/frjalsithrottaskoli_umfi_2012/
Deila fréttinni

22 maí 2013
Ársþing HSV

Kastmót UFA verður haldið á Þórsvellinum n.k. fimmtudag 23.maí Mótið hefst kl 17:30 og verður keppt í kastgreinum en einnig ýmsum hlaupa- og stökkgreinum þrátt fyrir að mótið heiti kastmót! Nánari uppl. og skráning er á mótaforriti fri
Rannveig Oddsdóttir sigraði í kvennaflokki í Viðavangshlaupi Íslands sem fram fór þann 11.maí í Laugadalnum. Rannveig hljóp á 26:34mín. Kári Steinn Karlsson kom fyrstur í mark í karlaflokki. Góð þátttaka var í hlaupinu en alls luku 103 keppni.
Meistaramót UÍA í sundi verður haldið í sundlauginni í Neskaupstað sunnudaginn 26. maí næstkomandi.

Eins og vonandi flestir vita fer Landsmót UMFÍ fram á Selfossi í sumar, dagana 4.-7. júlí („stóra landsmótið“). HSK mun að sjálfsögðu senda bæði karla- og kvennalið til keppni í blaki. Þjálfari hefur verið fenginn til þess að stýra báðum liðum og er það Hilmar Sigurjónsson.

Fyrsta æfingin til undirbúnings Landsmótsins fer fram þriðjudaginn 21. maí. Kvennaæfingin fer fram á Hvolsvelli og hefst hún kl. 18.00. Karlaæfingin fer fram í Hveragerði og hefst hún kl. 20.30. Stefnan er að sjálfsögðu sett hátt, eins og venjan er hjá HSK, og vonumst við eftir góðri mætingu svo hægt sé að stilla upp og æfa sterk keppnislið.

Með blakkveðju,
Gunnhildur Hinriksdóttir
formaður blaknefndar HSK

Landsmót UMFÍ 50 + verður haldið helgina 7. – 9. júní í Vík í Mýrdal.

Við hvetjum ykkur til að taka þátt í þessu skemmtilega móti og senda þessar upplýsingar á sem flesta. Allir geta tekið þátt í mótinu óháð félagsaðild að ungmennafélagi.

Mótið er íþrótta - og heilsuhátíð með fjölbreyttri dagskrá. Auk keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum verður boðið upp á ýmsa afþreyingu fyrir keppendur og gesti. Hægt verið að fara í sögugöngu um Vík í Mýrdal, Zumba, sundleikfimi, kvöldvökur og enda kvöldið á dansleik. Því er óhætt að segja að eitthvað verður í boði fyrir alla.

Keppnisgreinar á mótinu eru: Utanvegarhlaup um náttúruperlur Mýrdals, boccia, bridds, golf, frjálsíþróttir, hestaíþróttir, línudans, pútt, ringó, skák, pönnukökubakstur, dráttavélaakstur, kjötsúpugerð, ljósmyndamaraþon,búfjárdómar, sund, sýningar, þríþraut og utanvegar hjólreiðar. Allir á aldrinum 50 ára og eldri geta tekið þátt í keppnisgreinum mótsins. Þátttakendur greiða eitt mótsgjald og öðlast með því þátttökurétt í öllum keppnisgreinum. Mótsgjald er 3500 krónur óháð greinafjölda. Skráning fer fram á heimasíðu mótsins www.landsmotumfi50.is.

Sjáumst á Landsmóti UMFÍ 50 + í Vík í Mýrdal 7. – 9. júní 2013 kát og hress .

Frekari upplýsingar um mótið er að finna inn á www.landsmotumfi50.is eða senda póst á sigurdur@umfi.is sími: 568-2929

Keflavík gerði jafntefli gegn Fylki þegar liðin mættust á Nettó-vellinum í 4. umferð Pepsi-deildarinnar. Lokatölur urðu 2-2 í einstaklega skemmtilegum og fjörugum leik.&nb ...