sumar2013
3. Landsmót UMFÍ 50+27. Landsmót UMFÍ16. Unglingalandsmót UMFÍImage Map

Fréttir

júní17

Tómstundaleiðbeinandi óskast í Ungmenna- og tómstundabúðirnar Laugum í Sælingsdal Dalabyggð. Tómastundaleiðbeinandi hefur m.a. umsjón með þremur námskeiðum sem kennd eru ásamt því að sinna frístundastarfi að námskeiðum loknum. Hæfniskröfur: Leiðtogahæfileikar með áherslu á frumkvæði, sveigjanleika, jákvætt viðmót, samskiptafærni og skipulögð

Deila fréttinni Meira

júní14

Frjálsíþróttaskóli UMFÍ hófst á tveimur stöðum á landinu nú í vikunni, á Laugum í Reykjadal og á Egilsstöðum. Til leiks á Egilsstöðum mættu fimmtán krakkar, víðsvegar af Austurlandi en flestir koma úr Neskaupstað.Sú breyting hefur orðið á skólanum milli ára

Deila fréttinni Meira

júní13

HSK stendur fyrir fjölskyldugöngu á Búrfell í Grímsnesi í kvöld fimmtudaginn 13. júní kl. 18:30. Lagt verður af stað af bæjarhlaðinu á Búrfelli Við upphaf göngunnar býðst þátttakendum kostur á að skoða kirkjuna á staðnum og mun Böðvar Pálsson bóndi á Búrfelli segja stuttlega frá sögu staðarins og kirkjunnar.

Deila fréttinni Meira

júní12

Senn líður að 27. Landsmóti UMFÍ sem haldið verður 4. – 7. júlí á Selfossi. Undirbúningur hefur gengið mjög vel og kappkosta mótshaldarar að taka á móti landsmótsgestum með bros á vör. HSK í samstarfi við Árborg hélt Unglingalandsmót UMFÍ á síðasta

Deila fréttinni Meira

júní11

Þann 6. júní 2013 fór fram í Þjónustumiðstöð Ungmennafélags Íslands útgáfuhóf vegna endurútgáfu bókarinnar Verndum þau. Æskulýðsvettvangurinn (ÆV), samstarfsvettvangur Ungmennafélags Íslands, Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi og Slysavarnafélagsins Landsbjargar, afhenti höfundum bókarinnar þeim Ólöfu Ástu Farestveit og Þorbjörgu Sveinsdóttur þakklætisvott fyrir tíu ára samstarf.

Deila fréttinni Meira

júní10

Guðjón Loftsson hefur tekið þátt í öllum Landsmótum UMFÍ 50+ til þessa og um helgina gerði hann sér lítið fyrir og sigraði í opnum flokki í púttkeppninni. Guðjón, sem er 78 ára, gamall, býr í Hveragerði, æfir pútt með eldri borgurum inni á veturna og á svo á vorin

Deila fréttinni Meira

year: 2012 + month: 8
ágúst 2012

Fréttir sambandsaðila

FH ingar sterkir-
18.06.2013

PepsídeildinÓlafsvíkurvöllurSunnudaginn 16.júní 2013Víkingur Ó - FH 0-4 (0-2)0-1 Freyr Bjarnason (5.mín)0-2 Sjálfsmark (35.mín)0-3 Guðmann Þórisson (52.mín)0-4 Atli Viðar Björnsson (77.mín)Byrjunarlið Víkings Ó.: Einar Hjörleifsson, Alfreð Már Hjaltalín, Damir Muminovic, Insa Kiko, Tomasz Luba, Björn Pálsson, Farid Zato, Brynjar Kristmundsson, Eldar Masic, Guðmundur Magnússon og Arnar Már Björgvinsson. Varamenn sem komu inná: Steinar Már Ragnarsson, Fannar Hilmarsson og Vignir Snær Stefánsson. Ónotaðir varamenn: Kaspars Ikstens, Kristinn M. Pétursson, Anton Jónas Illugason og Guðmundur Steinn Hafsteinsson. Meiddir: Jernej Leskovar, Eyþór Helgi Birgisson. Í leikbanni: Emir Dokara.Víkingur Ó hefur nú notað 21 leikmann í Pepsídeildinni. Það var vitað að Íslandsmeistararnir væru með sterkt lið og þess vegna viðbúið að þessi leikur gæti farið illa. En fjögur núll bjuggust fáir við. FH hafði tapað sínum leik gegn KR á heimavelli í umferðinni á undan og þess vegna var vitað að þeir myndu koma dýrvitlausir í þennan leik. Vitað var að þeir myndu beita hápressu strax í byrjun og freista þess að setja mark sem allra fyrst. Ef það tækist ekki hjá þeim fyrstu 20 mínúturnar að þá var viðbúið að þeim myndu færa sig til baka og reyna að lokka Víkings Ó liðið framar á vellinni og beita skyndisóknum í einhvern tíma. Þar hefðu okkar möguleikar gegn þeim í fyrri hálfleik geta legið. En þeir fengu óskabyrjun og skoruðu strax á 5. mínútu. Annar leikurinn í röð sem við fáum á okkur mark strax á 5.mínútu og það er okkur dýrt. En nú fengum við að halda áfram 11 inná vellinum. Við áttum alveg í fullu tré við FH í fyrri hálfleiknum en við erum þessa dagana frekar bitlausir framávið vegna meiðsla sóknarmanna hjá okkur og kannski vegna þess hve við erum frekar varnarsinnaðir á miðjunni. En þetta á eftir að lagast. Byrjunin hjá okkur minnir mig á árið 2006 í 1.deildinni. Það var í 9.umferð að við unnum okkar fyrsta leik það árið og um haustið enduðum við í 7.sæti með 19 stig og fjóra sigra, sjö jafntefli og sjö töp. Það var 10 liða deild. Ég trúi því statt og stöðugt að fyrsti sigurinn er innan seilingar og þegar hann næst fer liðið heldur betur í gang. Hann var vel sóttur leikurinn í Ólafsvík á okkar mælikvaða. 745 áhorfendur mættu á leikinn og stuðningsmenn Víkings Ó eiga heiður skilið að gefast ekki upp þó liðinu gangi verr en við vildum. Leikmennirnir mega vita það að stuðningsmennirnir munu aldrei snúa baki við þeim og sama með Ejub þjálfara. Það er ekkert smá afrek sem stjórn félagsins, Ejub og hans menn hafa náð með liðið, úr neðstu deild í þá efstu á 9 árum. Samhliða þessum glæsta árangri okkar klúbbs hefur aðstaðan á vellinum byggst upp og í dag á Ólafsvík einn glæsilegasta fótboltavöll landsins. Það eru ákveðnir leikir sem eru okkur mikilvægari en aðrir í deildinni. Það eru leikirnir gegn liðunum í neðri hlutanum. Þar liggja stigin okkar frekar en gegn "risunum". Það er bónus ef okkur tekst að vinna inn stig gegn fjórum efstu liðunum og það verður að sjálfsögðu reynt að gera, en ef það tekst ekki eins og á móti FH að þá grátum við það ekki. FH kemur til með að vinna flest öll liðin sem við erum að keppa við og sama með KR og Val. En gegn öðrum liðum skulum við gera allt til að vinna. Við nefnilega vitum hvar við stöndum og markmiðið hjá okkur er sama og hjá öllum liðunum í kringum okkur í töflunni að við ætlum að gera allt til þess að halda sæti okkar í deildinni. Eftir þetta keppnistímabil vitum við betur hvernig þessi deild er. Einn sigur og við erum komnir úr fallsæti ef ákveðnir aðrir leikir fara eins og við viljum. Það er ekkert búið að stinga okkur af og þessi slæma byrjun, sem er í raun besta byrjun okkar í Pepsídeildinni á ferlinum, hefur í sjálfu sér ekkert skaðað okkur. Boltinn er bara ennþá hjá okkur. En það væri gaman setja allt á annan endann hjá sparkspekingunum og knattspyrnuhreyfingunni með því á hirða stig á KR vellinum í næsta deildarleik. Við getum það alveg. En snúum okkur aftur að leiknum gegn FH. Það var rjómablíða í Ólafsvík fimm mínútum fyrir leik og auðvitað um leið og Örvar Sær Gíslason (bróðir Rúnars Freys Gíslasonar leikara) flautaði leikinn á að þá byrjaði að blása. En það bjargaðist því vindurinn varð aldrei verulega sterkur að hann hefði áhrif á leikinn. Byrjunin eins og ég nefndi áðan var ekki sú sem við vildum sjá. En þrátt fyrir þetta stóra tap sem mér ásamt fleirum fannst í stærra lagi var Víkings Ó liðið að leggja sig fram. Strákarnir börðust um alla bolta og vinnusemin í liðinu var til fyrirmyndar. Ekkert útá það að kvarta. En það sem mér finnst liðið mætti laga, er það sem sást lítið hjá liðinu síðustu árin og er komið í liðið, það er of mikið af háum boltum yfir tengiliðina og fram á fremstu menn og líka allt of mikið af sendingum aftur á markvörðinn sem síðan sparkar boltanum út og mótherjinn oft á tíðum vinnur þannig boltann af okkur. Kantspilið þyrfti að vera öflugra og þaðan eiga að koma eitraðar sendingar fyrir markið um leið og boltinn er kominn langleiðina að hornfána. Leikmenn mættu líka róa sig aðeins niður og horfa betur í kringum sig, en það er hraðinn í deildinni sem kemur okkur kannski mest á óvart og við honum verðum við að bregðast. Það er minni tími sem leikmenn fá með boltann en í 1.deildinni og þess vegna þyrftu menn að hafa einhver ráð til að grípa í þegar liðið liggur undir mikilli pressu. Til dæmis að kantmennirnir spili sig betur fría til að hægt sé að losa boltann til þeirra og á meðan geta aðrir leikmenn hlaupið í "holurnar" sem myndast í varnarmúr mótherjanna. En þetta voru mínar hugrenningar um liðið. En þegar upp er staðið að þá var þetta sanngjarn sigur FH. Fyrsta markið sem kom mjög snemma skipti miklu máli fyrir þennan leik og í stöðunni 0-1 var Guðmundur Magnússon leikmaður Víkings Ó felldur á markteig af varnarmanni FH og þar skorti Örvar Sæ hugrekki til að dæma víti og ef okkur hefði tekist að jafna leikinn á þeim tímapunkti hefði allt getað gerst í leiknum. En það er erfitt að vera nýliðar í stórri deild þar sem ákveðin lið hafa verið áskrifendur af sæti í tugi ára. Erfitt að brjóta það upp. Virðing fyrir "stóru" liðunum virðist einhvern veginn vera föst í hausnum á sumum dómurum. Mér finnst að það þurfi að koma upp svipuðu kerfi og er í Englandi, ef dómari verður uppvís af afdrifalíkum mistökum, líkt og dómarinn í síðasta leik okkar að þá skuli hann dæma í næstu umferð leik í lægri deildunum sem er minna borgað fyrir en í Pepsídeildinni. Öðruvísi vanda menn sig ekki. Það var gaman að sjá ungan 16 eða 17 ára uppaldan stórefnilegan dreng Vigni Snæ Stefánsson (Kristóferssonar) koma inná og eiga góðan leik. Hann spilaði síðustu 10 mínúturnar og var kröftugur. Til hamingju Vignir með þinn fyrsta leik í Pepsídeildinni. Í síðasta leik setti Ejub, Anton Jónas Illugason inná gegn Breiðablik og Kristófer Jakobsen Reyes hefur einnig verið í leikmannahópnum. Allir Ólsarar. Nú virðist ný kynslóð sem hefur verið undir handleiðslu Ejub, Bega og fleiri góðra þjálfara að vera að byrja að skila sér uppí meistaraflokkinn. Glæsilegt. Að mínu mati voru þrír bestu leikmenn Víkings Ó í leiknum þessir: Farid Zata (þrátt fyrir sjálfsmarkið og aðdraganda þess), Damir Muminovic og Tomasz Luba. Næsti leikur verður í Borgunarbikarnum á Ólafsvíkurvelli næsta miðvikudag kl. 19.15. Mótherjinn er Pepsídeildarlið Fram sem hefur verið á mikilli siglingu eftir þjálfaraskiptin. Helgi Kristjánsson

Stelpurnar með sigur á BÍ/Bolungarvík-
18.06.2013

Fyrsti sigur Víkings Ó í Íslandsmóti í sögunni. 1.deild kvenna.TorfnesvöllurSunnudaginn 16.júní 2013BÍ/Bolungarvík - Víkingur Ó. 0-1 (0-0)0-1 Freydís Bjarnadóttir (85.mín, víti)Í dag vann meistaraflokkur Víkings Ó sinn fyrsta leik í Íslandsmóti þegar liðið lagði BÍ/Bolungarvík á útivelli 0-1. Við þennan sigur lyfti liðið sér upp í 5.sæti í riðlinum með 5 stig. Næsti leikur liðsins verður föstudaginn 21. júní kl. 20.00 á Ólafsvíkurvelli gegn liði ÍA sem heyjir baráttu við Fylki um toppsætið í riðlinum. Til hamingju með sigurinn, stelpur. Helgi Kristjánsson

Skráning hafin í Akureyrarhlaup-
18.06.2013

Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa og Átaks verður haldið næstkomandi laugardag. Hlaupið er almenningshlaup þar sem boðið er upp á þrjár vegalengdir 5 km, 10 km og hálfmarþon. Keppni í hálfmaraþoni er í ár einnig Íslensmeistaramót í þeirri vegalengd. UFA sér um framkvæmd hlaupsins sem jafnframt er fjáöflun fyrir félagið. Við hvetjum unga sem aldna til að taka þátt með því að hlaupa með eða fara út og hvetja hlauparana áfram (biðjum fólk þó að fara ekki á rúntinn um hlaupaleiðina í þeim tilgangi, heldur leggja bílnum og finna sér góðan stað við hlaupaleiðina til að standa og hvetja).Skráning er hafin á hlaupasíðunni en einnig verður hægt að skrá sig í Átaki á föstudaginn milli kl. 16 og 20.Á heimasíðu hlaupsins má sjá allar nánari upplýsingar um hlaupið 

Tap á teppinu-
18.06.2013

Keflavík tapaði sínum fimmta leik í sumar þegar liðið heimsótti Stjörnuna í 7. umferð Pepsi-deildarinnar. Leikurinn var jafn en það voru heimamenn sem náðu að ...

ÍRB sýndi yfirburði á UMÍ-
17.06.2013

UMÍ helgin var sigursæl fyrir sundmenn ÍRB. Lið 12 sundmanna á aldrinum 15-20 ára keppti á mótinu auk þess sem þrír yngri sundmenn, Svanfríður Steingrímsdótt ...

Góð þátttaka í kvennahlaupinu-
15.06.2013

Fín þátttaka var í kvennahlaupinu um allt land en hlaupið var á tíu stöðum á Austurlandi í blíðskaparveðri.

lm50blad2013

Köll eftir umsóknum

  untitled

  

  lmuntitled

 

 

  


 
ungt_lydraedi
UNGT FÓLK OG LÝÐRÆÐI
Þátttaka ungs fólks í skipulagsmálum sveitarfélaga
LOKASKÝRSLA



 

Unglingalandsmót
Landsmót
Landsmót
Göngum um Ísland
Leiðtogaskólinn
Frjálsíþróttaskólinn
Forvarnadagurinn
Ungmenna- og tómstundabúðir
Evrópa unga fólksins
Æskulýðsvettvangurinn
isafold

Sambandsaðilar