júlí23
Síðasti dagur skráningar

 

Á miðnætti í kvöld lýkur skráningu keppenda á 13. Unglingalandsmóti UMFÍ sem haldið verður í Borgarnesi um verslunarmannahelgina 29. júlí til 1. ágúst.

 

 

Útlit er fyrir mikla þátttöku en nú síðdegis höfðu ríflega 1.200 krakkar skráð sig til keppni. Þess má geta að á unglingalandsmótinu á Sauðárkróki í fyrra tóku um 1.500 þátt en árin þar á undan voru keppendur yfirleitt um 1.000 talsins.

 

 

Mótsgjaldið er kr. 6.000 og heppilegast er að greiða inn á reikning mótsins áður en mótið hefst. Greiðendur eru beðnir um að láta kennitölu keppanda koma fram og sýna greiðslukvittun þegar mótsgögn eru sótt.

 

Reikningsnúmerið er:   0186-26-6908  og kennitala:   670269-0869.

 

Share on Facebook


Samstarfsaðilar

Coke EJS
Samkaup Landsbanki Íslands
Lýðheilsustöð Menntamálaráðuneytið
Prentmet
Síminn KSÍ
KKÍ Landssamband hestamannafélaga
KKÍ  

Sambandsaðilar