júlí28
Stefnir í fölmennasta unglingalandsmót frá upphafi
13. Unglingalandsmót UMFÍ fer fram um verslunarmannahelgina í Borgarnesi. Að sögn Ómars Braga Stefánssonar framkvæmdastjóra mótsins stefnir í að þetta mót verði það fjölmennasta frá upphafi hvað keppendur áhrærir. Mótið hefst á fimmtudag en þá hefst keppni í körfuknattleik.


Fyrra met var slegið á Sauðárkróki í fyrra þegar þátttakendur voru 1500 og heildargestafjöldi um 10-12 þúsund. Mótin þar áður voru þátttakendur um 1000 talsins.


,,Það lítur út fyrir metþátttöku en um 1700 skráningar hafa borist. Undirbúningur er á lokastigi en mikil vinna hefur verið hjá sérgreinastjórum og öðrum að gera allt klárt fyrir mótið. Það er alveg ljóst að til Borgarness mun leggja leið sína fjöldi gesta,“ sagði Ómar Bragi Stefánsson.

Mynd: Frá keppni á unglingalandsmótinu sem haldið var á Sauðárkróki sl. sumar.

Share on Facebook


Samstarfsaðilar

Coke EJS
Samkaup Landsbanki Íslands
Lýðheilsustöð Menntamálaráðuneytið
Prentmet
Síminn KSÍ
KKÍ Landssamband hestamannafélaga
KKÍ  

Sambandsaðilar