júlí29
Keppni er hafin á unglingalandsmótinu

 

Jafnt og þétt fjölgar gestum á 13. Unglingalandsmót UMFÍ en búist er við miklum fjölda á mótið. Nú þegar hafa margir komið sér fyrir á tjaldsvæðinu.


Skráningar keppenda hafa aldrei verið fleiri og er talið að gestir og keppendur verði á bilinu 10-12 þúsund meðan á mótinu stendur.


Unglingalandsmótið verður sett á föstudagskvöldið á íþróttavellinum og þar munu keppendur ganga fylktu liði inn á völlinn. Veðrið er gott í Borgarnesi í dag, milt og hitinn 17 stig. Veðurspáin er með ágætum fyrir helgina og gera spár ráð fyrir sólskini og hita á bilinu 15-17 stig.

 

Mynd: Körfuboltinn fór af af stað í dag en keppendur í þeirri grein eru rúmlega 500 hundruð. Strákarnir í Fjölni bíða eftir fyrsta leik sínum.

Share on Facebook


Samstarfsaðilar

Coke EJS
Samkaup Landsbanki Íslands
Lýðheilsustöð Menntamálaráðuneytið
Prentmet
Síminn KSÍ
KKÍ Landssamband hestamannafélaga
KKÍ  

Sambandsaðilar