júlí30
Veðrið leikur við keppendur og mótsgesti
Veðrið leikur við keppendur og mótsgesti á 13. Unglingalandsmóti Ungmennafélags Íslands í Borgarnesi. Gestum fjölgar jafnt og þétt og er mikil umferð sem liggur til Borgarness.

Lögreglan hvetur ökumenn að fara varlega, virða umferðareglur svo umferðin megi ganga sem best og bifreiðum sé lagt á merktum svæðum.


Keppni í knattspyrnu og frjálsum íþróttum hófst í dag og hafa 3-4 þúsund áhorfendur fylgst með keppninni. Það fer vel um keppendur og gesti en blíðskapar veður hefur verið í allan dag í Borgarnesi. Sólin skín bjart og hitinn nú síðdegis er 22 gráður.


Keppni heldur áfram fram á daginn en mótssetning verður á íþróttavellinum í kvöld og hefst hún klukkan 20. Setningin mun standa í um klukkustund. Samhliða keppni eru ýmsar upp á komur í Skallagrímsgarði.

Mynd: Það hefur verið mikil og góð setmning á unglingalandsmótinu í Borgarnesi í dag.

Share on Facebook


Samstarfsaðilar

Coke EJS
Samkaup Landsbanki Íslands
Lýðheilsustöð Menntamálaráðuneytið
Prentmet
Síminn KSÍ
KKÍ Landssamband hestamannafélaga
KKÍ  

Sambandsaðilar