júlí30
Minnisvarði afhjúpaður
13. Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands hófst í Borgarnesi í dag og er óhætt að segja að mótið fer glæsilega af stað og ljóst að skemmtilegir dagar eru fyrir höndum.

 

Um hádegið var afhjúpaður bautasteinn sem verður nokkurs konar minnisvarði um mótið í Borgarnesi.

 

Fyrir er annar bautasteinn en hann er minnisvarði um Landsmótið sem haldið var í Borgarnesi 1997.

 

Það voru Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, og Páll Brynjarsson sveitarstjóri í Borgarbyggð sem afhjúpuðu minnisvarðann.

 

Mynd: Á meðfylgjandi mynd má sjá þau Helgu Guðrúnu Guðjónsdóttur og Pál Brynjarsson við athöfnina á Hamri í dag.

Share on Facebook


Samstarfsaðilar

Coke EJS
Samkaup Landsbanki Íslands
Lýðheilsustöð Menntamálaráðuneytið
Prentmet
Síminn KSÍ
KKÍ Landssamband hestamannafélaga
KKÍ  

Sambandsaðilar