Tvö ný unglingalandsmótsmet voru sett á 13. Unglingalandsmóti UMFÍ í Borgarnesi í dag. Alfons Sampsted, UMSK, setti í met í hástökki í 12 ára flokki. Alfons fór yfir 1,53 metra og bætti gamla metið um einn centimetra.
Hann átti síðan góðar tilraunir við 1,55 metra en felldi naumlega. Theatmanii Sturludóttir tvíbætti metið í spjótkasti í 13 ára flokki. Hún kastaði 36,96 metra en fyrir mótið var gamla metið 33,29 metrar.
Alfons, sem er að keppa á sínu þriðja unglingalandsmóti, sagði að hann væri að vonum mjög ánægður með þennan árangur sinn.
,,Ég byrjaði að æfa frjálsar íþróttir fyrir tveimur árum síðan en eldri bróðir minn hafði mikil áhrif á að ég tók þá ákvörðun. Ég ætla að halda áfram á sömu braut og bæta mig í framtíðinni. Mér finnst alltaf jafn skemmtilegt að keppa á unglingalandsmóti.
Mynd: Alfons Sampsted eftir sigurinn í hástökkinu þar sem hann setti jafnframt unglingalandsmót. Til hliðar sést hann fara yfir 1,53 metra.