júlí31
Mikill fjöldi áhorfenda við setningu mótsins

Það var þétt setið í brekkunni á Skallagrímsvelli við setningu 13. Unglingalandsmóts UMFÍ í gærkvöldi. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, setti mótið.

 

Auk hennar fluttu Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Björn Bjarki Þorsteinsson, formaður unglingalandsmótsnefndar og formaður byggðarráðs Borgarbyggðar, ávörp.

 

Keppendur gengu fylktu liði inn á Skallagrímsvöll í frábæru veðri, stillt var og hitinn um 18 gráður. Keppendur á unglingalandsmóti hafa aldrei áður verið fleiri en yfir 1700 eru skráðir til keppni.

 

 

Mynd: Frá setningu 13. Unglingalandsmóts UMFÍ á Skallagrímsvelli í Borgarnesi í gærkvöldi.

Share on Facebook


Samstarfsaðilar

Coke EJS
Samkaup Landsbanki Íslands
Lýðheilsustöð Menntamálaráðuneytið
Prentmet
Síminn KSÍ
KKÍ Landssamband hestamannafélaga
KKÍ  

Sambandsaðilar