Sprelligosaklúbbur fyrir 5 ára og yngri

Það verður líf og fjör í leikskólanum Klettaborg á föstudag og laugardag frá kl. 10 til 12. Þar hefur Þórdís Þórisdóttir leikskólakennari umsjón með Sprelligosaklúbbi þar sem áherslan er á að allir skemmti sér.

 

Sögustund í Safnahúsi

Hér gefst yngstu gestunum tækifæri til að eiga rólega stund og hlusta á sögur og upplestur.
Föstudag, laugardag og sunnudag kl. 15.

 

Fjörkálfaklúbbur fyrir 6 – 10 ára krakka

Á Kjartansgötuvelli verður margt brallað föstudag, laugardag og sunnudag frá kl. 13 ti 15. Félagar Ungmennahússins Mímis verða með leiktæki og fjölbreytt verkefni fyrir þennan aldurshóp.

 

Barnabíó í Óðali

Í félagsmiðstöðinni Óðali verður barnabíó laugardag og sunnudag kl. 16 Frítt er í bíó og verður sama myndin sýnd báða dagana.

 

Leiktæki

Á Borgarbraut 59 verða staðsett leiktæki fyrir yngri krakkana.  Þar verður opið kl. 15 - 17 föstudag, laugardag og sunnudag.

 

Sundleikar UMFÍ

Á föstudaginn kl. 10 – 12 geta allir krakkar yngri en 11 ára sem kunna að synda tekið þátt í sundleikum UMFí. Synt verður í innilauginni í íþróttamiðstöðinni. Allir þátttakendur fá verðlaunaskjal.

 

 

Share on Facebook Meira


Samstarfsaðilar

Coke EJS
Samkaup Landsbanki Íslands
Lýðheilsustöð Menntamálaráðuneytið
Prentmet
Síminn KSÍ
KKÍ Landssamband hestamannafélaga
KKÍ  

Sambandsaðilar