Stigaganga í Borgarnesi, föstudag kl. 13:30
Víða í bæjum eru göngustígar en landfræði Borgarness gerir það að verkum að óvíða eru fleiri stigar eða tröppur sem gera fólki kleift að komast leiðar sinnar. Í þessari gönguferð verður neðri hluti Borgarness þræddur um stigana sem leynast víða. Lagt af stað frá haugi Skallagríms í Skallagrímsgarði. Leiðsögn annast Jónína Erna Arnardóttir og búast má við um klst. göngu
Ganga á Hafnarfjall, laugardag kl. 11
Jenny Johansen leiðir göngu á Hafnarfjall. Lagt verður upp frá Háumelum sem eru við gamla þjóðveginn undir fjallinu. Gengið verður á fremsta tind fjallsins og ef veður er gott og áhugi er fyrir hendi er möguleiki að ganga á fleiri tinda. Gera má ráð fyrir að gangan taki um 3 klst ef einungis er farið á fremsta tindinn. Göngumenn eru hvattir til að vera vel búnir og taka með sér vatn.
Um holt og hæðir Borgarness, sunnudag kl. 13:30
Í Borgarnesi er ekki nauðsynlegt að fara út úr bænum til að komast í sæmilega erfiða göngu þar sem alls staðar eru holt og hæðir sem hægt er ganga á. Mikið útsýni er víða og bærinn og umhverfið blasir við frá öðru sjónarhorni. Lagt af stað frá bílastæðinu við Landnámssetrið. Leiðsögn annast Jónína Erna Arnardóttir og búast má við um klst. göngu.
Share on Facebook Meira













