KSÍ knattþrautir
Knattspyrnusamband Íslands verður með knattspyrnuþrautir á íþróttavellinum kl. 17:00 – 19:00 á laugardag.  Krakkar á öllum aldri eru hvattir til að kíkja við og taka þátt í þessum skemmtilegu þrautum sem gaman er að glíma við.


Skotkeppni í körfubolta
Á sunnudag kl. 16:00-18:00 verður skotkeppni í körfubolta á malbikuðum körfuboltavelli á íþróttasvæðinu.  Allir geta tekið þátt en keppt verður í nokkrum aldursflokkum.  Það eru allir hvattir til að taka þátt í þessari skotkeppni enda alltaf gaman í körfubolta.


Sundleikar UMFÍ
Á föstudagsmorgni milli kl 10.00 og 12.00 verða svokallaðir  “sundleikar UMFÍ” .  Þeir eru fyrir krakka 10 ára og yngri og verða í innilauginni í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi.  Allir krakkar á þessum aldri geta tekið þátt, mætt á staðinn og synt ákveðna vegalengd sem passar hverjum og einum.  Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal. 

 

Share on Facebook Meira


Samstarfsaðilar

Coke EJS
Samkaup Landsbanki Íslands
Lýðheilsustöð Menntamálaráðuneytið
Prentmet
Síminn KSÍ
KKÍ Landssamband hestamannafélaga
KKÍ  

Sambandsaðilar