Rathlaup
Rathlaup er hlaupaíþrótt sem stunduð er á opnum svæðum bæði innan borgarmarka og utan. Þátttakendur fá kort af hlaupasvæðinu og eiga með aðstoð þess að fara á milli stöðva sem merktar eru á kortið. Hlaupið gerir miklar kröfur til hlauparans sem þarf að einbeita sér að því að rata rétta leið um leið og hann fer eins hratt og hann getur á svæði sem getur verið honum algjörlega ókunnugt
Á laugardeginum er æfingahlaup í Borgarnesi. Hlaupið er um suðurenda bæjarins en kortin og leiðbeiningar um íþróttina má nálgast í Skallagrímsgarðinum frá kl. 10 til 16.
Á sunnudeginum fer fram keppni við útvistasvæðið Einkunnir. Keppendur verða ræstir á klukkutíma fresti frá kl. 11 – 16 og hafa 60 mínútur til að reyna að finna sem flestar þeirra stöðva sem eru merktar inn á kort sem þeir fá afhent við upphaf hlaups. Allir eru hvattir til að mæta og prófa.
Parkour
Parkour er íþrótt sem snýst um að koma sér á milli staða eins hratt og örugglega og hægt er. Í Parkour er notast við stökk og veltur og iðkendur nýta sér allt umhverfið til að búa til hindranir og þrautabrautir til að sigrast á.
Þessi íþrótt er keppnislaus, fyrir utan þau persónulegu markmið sem iðkandinn setur sér. Þegar lengra er farið í íþróttinni og getustigið hækkar er algengt að iðkendur temji sér ákveðin heljarstökk sem bætt eru inn í þrautabrautina. Í því tilviki er það útlitið en ekki hraðinn sem skiptir máli. Parkour reynir á allan líkamann en mikil áhersla er lögð á að iðkendur kunni að detta og leiða höggið frá sér og þar með taka í burtu álagið sem fallinu fylgir.
Á föstudeginum verður kynning á Parkour. Hún hefst með sýningu á körfuboltavellinum við sundlaugina frá kl. 15. Frá kl. 16 til 18 gefst mótsgestum kostur á að spreyta sig við greinina undir leiðsögn á túninu á Borgarbraut 59. Þá verður haldið áfram á íþróttavellinum um kvöldið að lokinni setningarathöfn.
Share on Facebook Meira













