Fjölbreytt dagskrá verður í Skallagrímsgarði og nágrenni alla helgina.
Á Kjartansgötuvelli verður Fjörkálfaklúbbur fyrir krakka á aldrinum 6 – 10 ára alla dagana frá kl. 13 til 15.
Í félagsheimilinu Óðali verður barnabíó á laugardag og sunnudag kl. 16. Frítt er í bíó og verður sama myndin sýnd báða dagana.
Föstudagur 30. júlí
13:00 Tónlist og tilkynningar
13:30 Hólmfríður Valdís Sævarsdóttir, trúbador
13:30 Gönguferð með leiðsögn
14:00 Söngkeppni, skráning á staðnum
15:00 Bernd Ogrodnik frá Brúðuheimum
15:30 Tónlist: Siggi Óli og Bankaæringjarnir leika
16:00 Línudanskennsla með Kollu og Þóru
16:30 Órafmögnuð tónlist frá Ungmennahúsi
Á körfuboltavellinum við garðinn verður kynning á Parkour frá kl. 15 – 16.
Laugardagur 31. júlí
13:00 Tónlist og tilkynningar
13:30 Íris Björg Guðbjartsdóttir, trúbador
14:00 Bernd Ogrodnik frá Brúðuheimum
14:30 Hólmfríður Valdís Sævarsdóttir, trúbador
15:00 Söngkeppni, skráning á staðnum
16:00 Tónlist frá Ungmennahúsi
Ratnhlaup verður kynnt í garðinum frá kl. 10 - 16.
Á knattspyrnuvöllum verða knattþrautir KSÍ frá kl. 17 - 19.
Sunnudagur 1. ágúst
11:00 Helgistund
11:20 Bernd Ogrodnik frá Brúðuheimum
12:00 Tónlist og tilkynningar
13:00 Söngkeppni, skráning á staðnum
14:00 Tónlist frá Ungmennahúsi
14:30 Íris Björg Guðbjartsdóttir, trúbador
Keppni í glímu fer fram í garðinum frá kl. 15 - 17
Á körfuboltavellinum við garðinn verður skotkeppni í körfu frá kl. 16 – 18.













