Dans - dagská

 

 


 

  • Nú verður í fyrsta sinn keppt í dansi á Unglingalandsmóti en löng danshefð er í Borgarfirði.
  • Keppni fer fram í Menntaskóla Borgarfjarðar, Borgarbraut 54,
  • laugardaginn 31. júlí 2010 kl. 10:30 - 19:00.
  • Þátttökuréttur ræðst af reglugerð UMFÍ um Unglingalandsmót.  

  • Keppnisgreinar eru eftirfarandi:  

11 ára 12-13 ára 14-15 ára 16-18 ára
Samba Samba Samba Samba
Cha Cha Cha Cha Cha Cha Cha Cha
Jive Jive Jive Jive
Waltz Waltz Waltz Waltz
Tango Tango Tango Tango
Quickstep Quickstep Quickstep Quickstep

  • Keppnisreglur:  

1. Keppt verður í eftirtöldum dönsum; Samba, Cha Cha, Jive, Enskum vals, Tangó 
og Quickstep.
2. Hver og einn dans er sérkeppni. Hægt er að skrá par til keppni í þeim öllum eða
velja aðeins einn dans.
3. Rétt til þátttöku eiga öll ungmenni á aldrinum 11 - 18 ára á almanaksárinu. 
Skv. reglum DSÍ eru þetta þeir keppnisflokknum Börn II, sem eru 11 ára á árinu,
óháð aldri dansfélaga og allir sem eru í keppnisflokkunum Unglingar I, Unglingar II
og Ungmenni.
4. Keppt verður eftir aldursflokkaskiptingu DSÍ (sjá undantekningu í 3. grein um Börn II)
en aðeins í einum styrkleikaflokki í hverjum dansi. Verði fleir en 10 pör skráð til 
keppni þá verða settir inn milliriðlar. Eftir fyrstu umferð halda 10 pör áfram í keppni
í milliriðli. Til úrslita keppa síðan 6 til 8 pör. Öllum sem keppa verður raðað í sæti 
eftir útreikningskerfi DSÍ.
5. Hver dans er að lágmarki 1,5 mínúta að lengd.
6. Keppnis- og klæðareglur DSÍ gilda.
7. Dómarar verða 5 til 7.

  • Tæknifundur:
  • Tímasetning tilkynnt síðar

Share on Facebook Meira


Samstarfsaðilar

Coke EJS
Samkaup Landsbanki Íslands
Lýðheilsustöð Menntamálaráðuneytið
Prentmet
Síminn KSÍ
KKÍ Landssamband hestamannafélaga
KKÍ  

Sambandsaðilar