Leikjaplön í knattspyrnu

 

Strákar 11-12 ára - Ný leikjatafla eftir riðlakeppni

Strákar 13-14 ára

Strákar 15-16 ára

Strákar 17-18 ára

Stelpur 11-12 ára

Stelpur 13-14 ára - Ný leikjatafla eftir riðlakeppni

Stelpur 15-18 ára

Nafnalisti knattspyrnuliða


  • Keppni í knattspyrnu fer fram á Skallagrímsvelli,æfingavöllum við hann og gervigrasvelli við Grunnskólann og hefst á föstudag kl. 8:00.
  • Keppt verður í eftirfarandi aldursflokkum:

Kvennafl. 11-12 ára 13-14 ára 15-18 ára
Karlafl. 11-12 ára 13-14 ára 15-16 ára 17-18 ára

  

Keppnisreglur


Almennt gildir reglugerð KSÍ um miniknattspyrnu, þó með þeim undantekningum sem hér fara á eftir.
Leikvöllurinn – Stærð leikvalla og vítateiga eru löguð að aðstæðum á keppnisstað. Vítamerki er alltaf 8 m frá marklínu.
Leikskýrslur – Ekki er krafist að þátttökulið skili inn leikskýrslum.
Leiktími – allir leikir eru 2x12 mínútur.
Aukaspyrnur – allar aukaspyrnur eru óbeinar.
Úrslitakeppni – Komi til þess að staða sé jöfn að leik loknum í úrslitaleikjum verður vítaspyrnukeppni, a.m.k. þrjár spyrnur á lið.
Útbúnaður – Notkun skrúfutakka á skóm er ekki heimil.

Áhersluatriði dómara


Legghlífar – Allir keppendur skulu vera með legghlífar.
Markspyrnur – Markmanni er heimilt að kasta út eða spyrna á lofti eftir að boltinn hefur farið útaf í flokki 11-12 ára. Í öðrum flokkum skal knötturinn lagður niður og honum spyrnt úr kyrrstöðu.
Prúður leikur – Áhersla skal lögð á að leikið sé prúðmannlega og gildir það einnig um orðbragð og almenna framkomu leikmanna og liðsstjóra. Liðsstjórar og þjálfarar eru beðnir að vera vakandi fyrir að taka menn af velli í kælingu ef leikar taka að æsast.
Brjóti leikmenn af sér með alvarlega grófum hætti skal dómari vísa viðkomandi leikmanni af leikvelli og er ekki heimilt að annar leikmaður komi í staðinn.
Leiktími – Mótið er hraðmót og skal leggja áherslu á að halda tímamörk. Það þýðir að ekki er bætt við tímann þó t.d. þurfi að huga að meiddum leikmanni eða sækja bolta sem farið hefur langt útaf. Dómari skal meta viðbótartíma ef bolti glatast og langan tíma tekur að nálgast nýjan.


 

Share on Facebook Meira


Samstarfsaðilar

Coke EJS
Samkaup Landsbanki Íslands
Lýðheilsustöð Menntamálaráðuneytið
Prentmet
Síminn KSÍ
KKÍ Landssamband hestamannafélaga
KKÍ  

Sambandsaðilar