Námskeið í Kompás

Námskeið í notkun á Kompás verður haldið í félagsheimili KFUM og KFUK í Sunnuhlíð á Akureyri dagana 12.-13.mars. Námskeiðið hefst kl. 16 á föstudeginum og því lýkur kl. 16 á laugardeginum. Ef þú vilt kynnast fjölbreyttum og skapandi leiðum fyrir ungt fólk sem nýtast jafnt innan skóla sem á vettvangi frjálsra félagasamtaka og æskulýðsstarfs þá er Kompás bókin sem þú ættir að kynnast.

 

Námskeiðið er ætlað fólki 18 ára og eldra sem er virkt í æskulýðsstarfi og hefur áhuga á mannréttindum og hins vegar starfsfólki og sjálfboðaliðum sem gegna ábyrgðarhlutverkum í æskulýðsstarfi. Námskeiðið er sérstaklega ætlað þeim sem hafa áhuga á að hvetja og þjálfa aðra í að nota Kompás.

 

Námskeiðið kostar 5000 kr. Kvöldmatur á föstudeginum og hádegisverður á laugardegi er innifalinn. Nánari upplýsingar eru gefnar í síma 588-8899. Það er Æskulýðsvettvangurinn sem stendur fyrir þessu námskeiði að tilstuðlan mennta- og menningarmálaráðuneytsins.

 

Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Pétur Björgvin Þorsteinsson, Jóhann H. Þorsteinsson og Guðrún Snorradóttur.

 

Skráning fer fram á netfanginu hjordis@kfum.is. Síðasti skráningardagur er 9. mars.Námskeið

Share on Facebook


Verkefni UMFÍ

Unglingalandsmót
Landsmót
Göngum um Ísland
Leiðtogaskólinn
Flott án fíknar
Forvarnadagurinn
Ungmenna- og tómstundabúðir
Evrópa unga fólksins

Lotto

Sambandsaðilar