Kennsluefni í félagsmálafræðslu sem inniheldur ræðumennsku og fundi. Gefið út af Ungmennafélagi Íslands í nýjum búningi árið 2008. Guðmundur Guðmundsson, fyrrverandi skólastjóri Félagsmálaskóla UMFÍ, tók námsefnið saman árið 1982. Í þessari útgáfu er námsefnið lítillega aukið og endurbætt, með nýrri uppsetningu og skýringarmyndum.

Deila fréttinni Meira

Félagsmálaspjöll. Bókin Félagsmálaspjöll, leiðir til árangurs í félagsstarfi, virkni fólks og vanda foringjans, eftir Sigurjón Bjarnason. Í bókinni er fjallað um leiðir til árangurs í félagsstarfi, líklegar tálmanir og sköpun sóknarfæra. Sagt frá hvernig félag verður til og hvernig það starfar og helstu viðfangsefni í félagsstarfi.

Deila fréttinni Meira

Handbók um fundarsköp. Fundarsköp, handbók um fundarstjórn og meðferð tillagna. Handbókin er byggð á bók eftir O.Garfield Jones en Jón Böðvarsson aðhæfði og staðfærði. Þetta er handbók sem auðveldar fundarstjóra að stjórna fundi og fundarmanni að taka þátt í fundarstörfum.

Deila fréttinni Meira

Laus við skrekkinn. Þetta er myndband sem gert var 1995 fyrir UMFÍ, ÆRR og Námsgagnastofnun. Á myndbandinu eru þrjár myndir um ræðumennsku (21 mín.), félagsstörf (9 mín.) og fundarstörf (21 mín). Myndbandið er einnig hægt að fá á DVD.

Deila fréttinni Meira

Vertu með. Vertu með 1 og 2 eru félagsmálanámsefni sem gefið var út af Æskulýðsráði ríkisins. Efnið var endurskoðað uppúr 1980 og gefið út 1983. Árið 1989 var efnið endurútgefið í enduskoðaðri og vandaðri útgáfu. Hér fyrir neðan eru bækurnar Vertu með 1 og Vertu með 2 á PDF

Deila fréttinni Meira


Verkefni UMFÍ

Unglingalandsmót
Landsmót
Landsmót
Göngum um Ísland
Leiðtogaskólinn
Frjálsíþróttaskólinn
Flott án fíknar
Forvarnadagurinn
Ungmenna- og tómstundabúðir
Evrópa unga fólksins

Lotto
isafold

Sambandsaðilar