Viðburðastjórnun
Námskeið fyrir þá sem koma að skipulagningu viðburða s.s. íþróttamóta, hverfis- eða bæjarhátíða. Um er að ræða grunnnámskeið í viðburðastjórnun. Farið er yfir helstu þætti þegar skipuleggja á viðburð, allt frá hugmyndavinnu til framkvæmdar og frágangs. Farið er yfir hugmyndavinnu, markhóp, markaðssetningu, fjárhagsáætlun, öflun samstarfsaðila, skipurit, verkaskiptingar, framkvæmd og ýmis vinnuferli. 6-8 kennslustundir.












