Umhverfisstefna UMFÍ

Markmið:

Að efla vitund ungmennafélaga og almennings á ábyrgð hvers einstaklings í umhverfismálum.
Við allt ungmennafélagsstarf verði umhverfis- og mannlífssjónarmið höfð að leiðarljósi.
Að ganga ekki á náttúruauðlindir og skila þeim í betra ástandi til komandi kynslóða.

Leiðir:

Að aðildarfélög UMFÍ marki sér skýra umhverfisstefnu til að vinna eftir.
Ungmennafélög leiti samstarfs við fagaðila og samtök er vinna að náttúru- og umhverfsivernd.
Fræðsla um umhverfismál og náttúruvernd verði hluti að menntun leiðtoga.
Ábyrg umgengni við landið verði hluti að uppeldis og íþróttastarfi ungmennafélaga.
UMFÍ skal leitast við að fræða fólk um leiðir til sjálfbærar þróunar.
Ungmennafélögin leitist við að hluti af barna- og unglingastarfi verði vettvangsferðir í náttúruna til að kenna, og að lesa og virða umhverfi sitt.
UMFÍ veiti árlega viðurkenningu þeim aðila innan eða utan samtakanna sem þykir hafa skarðað fram úr á sviði umhverfismála.

 

 

Samþykkt á 41. sambandsþingi UMFÍ 1999



Verkefni UMFÍ

Unglingalandsmót
Landsmót
Göngum um Ísland
Leiðtogaskólinn
Flott án fíknar
Forvarnadagurinn
Ungmenna- og tómstundabúðir
Evrópa unga fólksins

Lotto

Sambandsaðilar