Fyrri Unglingalandsmót
Fyrsta Unglingalandsmót UMFÍ var haldið á Dalvík 1992. Unglingalandsmótin hafa svo sannarlega sannað gildi sitt sem glæsilegar fjölskyldu- og íþróttahátíðir þar sem saman koma þúsundir barna og unglinga ásamt fjölskyldum sínum og taka þátt í fjölbreyttri dagskrá.
Unglingalandsmót UMFÍ er vímuefnalaus fjölskylduhátíð þar sem börn og unglingar á aldrinum 11 – 18 ára reyna með sér í fjölmörgum íþróttagreinum. Samhliða er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu, leiki og skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Unglingalandsmótin hafa hvarvetna vakið mikla athygli og þeir fjölmörgu sem þau hafa sótt hafa verið öðrum til mikillar fyrirmyndar með allri framkomu hvort sem er í keppni eða leik. Unglingalandsmótin eru klárlega með stærri íþróttaviðburðum á Íslandi ár hvert og eru nú orðin árlegur viðburður um verslunarmannahelgina.
Unglingalandsmótin eru ávallt haldin um verslunarmannahelgar og haf sem slík mikið forvarnargildi. Mótin eru ætluð ungmennum á aldrinum 11-18 ára og er keppt í fjölmörgum íþróttagreinum frá föstudegi til sunnudags.
Nánari upplýsingar um unglingalandsmótin er að finna á www.ulm.is












