Erlend samskipti

Ungmennafélag Íslands er í samskiptum og samstarfi við ýmis samtök og aðila víðs vegar um heiminn.  Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir þá helstu:

NSU.
Nordisk samorganisation for ungdomarbejde
UMFÍ er í samtökum ungmennafélaga á norðurlöndunum "Nordisk samorganisation for ungdomarbejde - NSU". Á þeim vettvangi er unnið mikið af sameiginlegum verkefnum sem tengja Norðurlöndin saman. Þar má nefna ungmennaskipti, ungmennavikur, markmiðsráðstefnur og ungbændaráðstefnur.
Sjá heimasíðu skólans : http://www.nsu.is/

ISCA
International Sport and Culture Association
UMFÍ er aðila að ISCA sem eru samtök um almenningsíþróttir og menningu hinna ýmsu landa í heiminum.
Sjá heimasíðu skólans: http://isca-web.org

Ungmennaskipti
Ungmennaskipti milli Noregs, Svíþjóðar og Íslands fara fram á hverju ári. Þar gefst íslenskum ungmennum kostur á að dvelja í 3 mánuði sér að kostnaðarlausu við leik og störf annað hvort í Noregi eða Svíþjóð. Dvalið er á heimilum víðs vegar í viðkomandi landi og koma unglingarnir heim vel talandi á sænsku eða norsku. Ferðakostnaður innanlands er borgaður af fjölskyldunum sem dvalið er hjá en viðkomandi þarf að sjá fyrir ferðakostnaði fram og tilbaka frá Íslandi.

DGI
Danmarks Gymnastik- og Idrætsforeninger
Það má segja að DGI í Danmörku sé eins konar systursamtök UMFÍ.  Mikið og gott samstarf hefur verið  á milli þessara tveggja samtaka og hafa báðir aðilar notið góðs af því. 
Sjá heimasíðu skólans: http://www.dgi.dk/


VNU
Vestnordisk Ungdoms forum


Íþróttalýðháskólar í Danmörku
Íþróttalýðháskólar bjóða upp á skemmtilegt og spennandi nám fyrir ungt fólk á átjánda ári og eldri. Skólarnir leggja áherslur á mismunandi íþróttagreinar en flestir bjóða þeir upp á allt mögulegt. Námið er krefjandi og uppbyggjandi og hver dagur býður upp á ný ævintýri.

UMFÍ hefur gert samstarfssamning við 6 íþróttalýðháskóla í Danmörku. Skólarnir eru vítt og breitt um landið og leggja áherslur á mismunandi íþróttagreinar.

UMFÍ getur veitt nemendum styrk til dvalarinnar og er hægt að hafa samband við þjónustumiðstöð UMFÍ s. 568 2929 um nánari upplýsingar eða á omar (hja)umfi.is

Hægt er að sækja um  styrk rafrænt á netinu með því að fylla út umsóknareyðublaðið hér fyrir neðan.

Skólar:

Sønderborg
Idrætshøjskolen i Sønderborg er staðsettur í frábæru umhverfi rétt við landamæri Danmerkur og Þýskalands. Hægt er að leggja stund á allar almennar íþróttagreinar, t.d. fótbolta, handbolta og badminton.
Sjá heimasíðu skólans: www.ihs.dk 
Ollerup 
Gymnastik højskolen i Ollerup er einn þekktasti fimleikaskóli Danmerkur en einnig er boðið upp á flestar aðrar íþróttagreinar. Mjög góð fimleika aðstaða er í skólanum með nýrri stökkhöll. Skólinn er í fallegu umhverfi rétt fyrir utan Svenborg á Fjóni.
Sjá heimasíðu skólans: http://www.ollerup.dk/

Gerlev    
Gerlev Idrætshøjskole er á góðum stað á Sjálandi. Boðið er upp á flest allar íþróttagreinar en aðaláhersla er lögð á körfubolta, bardagaíþróttir, ævintýraferðir, skíði, snjóbretti, dans, fitness og fótbolta.
Sjá heimasíðu skólans: http://www.gerlev.dk/
 
Viborg       
Gymnastik og Idrætshøjskolen i Viborg staðsettur við Viborg sem er norðarlega á Jótlandi. Skólinn býður upp á allar almennar íþróttagreinar en sérstök áhersla er lögð á fimleika, handbolta, óbyggðaferðir, sund og dýfingar.
Sjá heimasíðu skólans: http://www.vff.dk/

Århus        
Idrætshøjskolen i Århus er staðsettur í hjarta Árósa, þaðan sem mörg af bestu boltaliðum Dana koma. Skólinn býður upp á handbolta- og fótboltaakademíu, dansakademíu og flestar aðrar íþróttagreinar.
Sjá heimasíðu skólans: http://www.ihaarhus.dk/

Álaborg 
Nordjyllands Idrætshøjskole er yngsti íþróttalýðháskóli Danmerkur og er staðsettur um 20 km norður af Álaborg. Hægt er að leggja stund á allar almennar íþróttir, t.d. fótbolta, handbolta, badminton og dans, ásamt undirbúningsmáni fyrir lögregluskóla.
Sjá heimasíðu skólans: http://www.nih.dk/

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðum skólanna



Verkefni UMFÍ

Unglingalandsmót
Landsmót
Göngum um Ísland
Leiðtogaskólinn
Flott án fíknar
Forvarnadagurinn
Ungmenna- og tómstundabúðir
Evrópa unga fólksins

Lotto

Sambandsaðilar