Fræðslustefna UMFÍ


Fræðslustefna UMFÍ byggir á einkunnarorðunum Ræktun lýðs og lands og tekur til menningar, íþrótta og umhverfis. Þau gildi sem einkenna hana eru heiðarleiki, heilbrigði, traust og virðing. Í nútímasamfélagi er nauðsynlegt að vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi heilbrigðs lífstíls, fjölbreytileika þjóðfélagsins og virðingu fyrir umhverfinu. Samvera fjölskyldunnar, ungs fólks og eldri kynslóða er þýðingarmikil til að nýta fortíðina sem veganesti inn í framtíðina. Mikils virði er að skapa vettvang til að efla félagsþroska, samskiptahæfileika og læra gildi þess að starfa með öðru fólki að sameiginlegum markmiðum. Með þessu vill UMFÍ byggja upp frumkvæði og forystuhæfileika einstaklinga. Leiðir að markmiðum:


Menning.

UMFÍ vill stuðla að því að:


1. Auka vitund fólks um að við búum í síbreytilegu samfélagi.

Með því að:


• Auglýsa, skrifa greinar, halda ráðstefnur og kynningar

um málefni líðandi stundar sem brenna hvað mest á fólki s.s. íþróttaiðkun nýbúa, tómstundir, tækninýjungar, menningarheima, samstarf íþróttafélaga, æskulýðsfélaga, félagsmiðstöðva og skóla. Athuga sérstaklega með fleiri tungumál en íslensku.


• Halda námskeið fyrir einstaklinga, hópa og leiðbeinendur um málefni líðandi stundar sem tengjast starfi hreyfingarinnar.


• Halda landsmót, bjóða upp á viðburði á landsmótum sem tengjast áherslum í starfinu hverju sinni.


• Gefa út bæklinga, auglýsa og fleira.


• Stuðla að því að samstarfi á milli menningar- og aldurshópa verði komið á með fjölbreyttum uppákomum og verkefnum.


• Evrópuverkefni verði kynnt markvisst fyrir fólki í hreyfingunni.


• Stuðla að erlendum samskiptum. Leitað verði eftir þekkingu og reynslu fólks frá öðrum þjóðum.


• Halda ungmennabúðir á Laugum. Dagskrá og námskrá verði í stöðugri endurskoðun með tilliti til ofangreinds markmiðs.

2. Virkja fólk til þátttöku í félagsstarfi.

Með því að:


• Markaðssetja félagsstarf á jákvæðan hátt og kynna kosti þess að starfa í félagasamtökum, bæði á sviði stjórnunar og hópavinnu. Sýna fram á að fólk sem er í félagsstörfum er eftirsóknarvert og hefur sterka stöðu á vinnumarkaði.


• Halda námskeið í félagsstörfum á vegum Leiðtogaskólans sem býður vönduð og öflug námskeið í leiðtogaþjálfun.


• Auglýsingar, skrifa greinar og halda ráðstefnur þar sem fólk segir frá reynslu sinni og upplifun og gildi þess að taka þátt í félagsstarfi.


3. Virkja fólk til þátttöku á sviði menningar og lista.

Með því að:


• Bjóða upp á námskeið og skapa vettvang fyrir fólk á sviði menningar og lista.


• Kynna möguleika á þátttöku og standa fyrir námskeiðum, kynningum og lista- og  menningarviðburðum.


• Taka þátt í erlendu samstarfi þar sem í boði er að sækja menningar- og listviðburði.


• Halda námskeið bæði innlend og erlend um málaflokkinn.


4. Virkja fólk til sjálfboðaliðastarfa.

Með því að:


• Starfa í samstarfi við önnur sjálfboðaliðasamtök um hlutverk sjálfboðaliðans ísamfélaginu.


• Vekja athygli á sjálfboðaliðastarfi með umræðu, auglýsingum, ráðstefnum og greinaskrifum.


• Stuðla að því að sjálfboðastarfið verði sýnilegra, virðingarverðara og þakklátara með því að kynna mikilvægi þess fyrir samfélaginu.


• Sjá til þess að Dagur sjálfboðaliðans verði haldinn árlega.


• Gefa út kynningarefni um mikilvægi sjálfboðaliðastarfsins.


5. Mennta fólk til forystustarfa innan hreyfingarinnar.

Með því að:


• Efla fólk félagslega og bjóða upp á félagslega þroskandi verkefni t.d. með námi í erlendum lýðháskólum, leiðtogaskóla UMFÍ, ungmennavikum NSU o.fl.

6. Kynna og halda á lofti gildum hreyfingarinnar og sögu.

Með því að:


• Kynna gildi UMFÍ, heiðarleiki, heilbrigði, traust og virðing.


• Skipuleggja kynningar bæði innan og utan hreyfingarinnar.


• Gefa út  bæklinga, DVD diska, vefsíður og auglýsa.


7. Brúa kynslóðabilið.

Með því að:


• Skapa vettvang til að miðla þekkingu milli og innan aldurshópa.


• Kynslóðatjald verði sett upp á landsmótum þar sem ungir kenna öldnum og aldnir kenna ungum.


• Koma á fót samskipta- og þekkingarveri í þjónustumiðstöð.


Íþróttir


UMFÍ vill stuðla að því að:


1. Auka meðvitund um mikilvægi heilbrigðs lífsstíls sem felst í hollu mataræði og hreyfingu.

Með því að:


• Hafa aðgengilegar upplýsingar í gegnum heimasíðu/tengingar við aðra sem vinna að sömu markmiðum.


• Halda námskeið og ráðstefnur sem taka á málefninu.


• Gefa út kynningar- og námsefni sem tengist heilbrigðum lífsstíl.


• Halda landsmót með þátttöku allra aldurshópa þar sem hvatt er til hreyfingar.


2. Almenn þátttaka í íþróttum aukist s.s. almennings- og jaðaríþróttum

Með því að:


• Halda landsmót – tengja jaðaríþróttir við landsmótin.


• Skipuleggja íþróttaklúbba – opin íþróttahús fyrir þá sem vilja leika sér en ekki æfa til keppni.


• Skipuleggja fjölskylduverkefni – hvetja til verkefna þar sem fjölskyldan er saman.


• Skipuleggja gönguverkefni og önnur útivistarverkefni.

3. Efla foreldrasamstarf innan hreyfingarinnar.

Með því að:


• Halda námskeið og kynningar fyrir foreldra um foreldrahlutverkið í félagsstarfinu.


• Halda kynningar fyrir foreldra á skipulagi og fjármögnun félaga.


4. Efla þjóðlegar íþróttir (glímu og þjóðdansa).

Með því að:


• Starfa með félögum sem vinna að því að viðhalda þjóðlegum íþróttum.


• Halda kynningar og námskeið.


• Tengja þær við landsmót með sýningum og keppnum.


5. Fjölga íþróttamótum þar sem þátttaka er aðalatriðið.

Með því að:


• Halda fleiri mót með þátttökumarkmiði þar sem félagsskapurinn og þátttakan er aðalatriðið.


• Tengja viðburði og almenningsíþróttir bæjarhátíðum með samstarfi við sveitarfélög.


Umhverfi


UMFÍ vill stuðla að því að:


1. Efla vitund fólks um mikilvægi góðrar umgengni.

Með því að:


• Setja upplýsingar á heimasíðu UMFÍ um leiðir í umhverfisvernd.


• Tengja heimasíðu UMFÍ við aðrar heimasíður sem hafa sömu markmið.


• Skipuleggja átaksverkefni – sem stuðla að bættri umgengni s.s. tínum rusl/hreinsum  fjörur/veggjakrot.


• Auglýsinga sem hvetja til aukinnar meðvitundar um umhverfismál.


• Skipuleggja umhverfisverkefni tengd landsmótum og öðrum viðburðum hreyfingarinnar.


2. Sem flestir geti notið íslenskrar náttúru.

Með því að:

• Efla vefinn www.ganga.is sem auðveldar fólki aðgengi að gönguleiðum.


• Vinna að merkingu gönguleiða.


• Gefa út efni með merktum gönguleiðum.


• Hvetja til bætts aðgengis fyrir alla að útivist.


3. Auka þátttöku almennings í ræktun og verndun náttúrunnar.

Með því að:


• Auka framboð verkefna fyrir sjálfboðaliða í umhverfisvernd.


• Tengja við Skógræktarfélag Íslands og önnur álíka samtök.


• Hvetja til verkefna í tengslum við náttúruvernd.


4. Efla útivistartengd verkefni.

Með því að:


• Skipuleggja gönguverkefni og önnur útivistarverkefni


• Halda úti hugmyndabanka á heimasíðu um útivistartengd verkefni.


5. Fólk tileinki sér umhverfisvænan lífsstíl

Með því að:


• Vekja athygli á óþarfa umbúðum, mengun, hreinu vatni, hreinni orku og útblæstri bíla.


• Hvetja félög til að gera sér umhverfisstefnu og rækta sitt fólk í umhverfishugsun.


• Hvetja til að hjóla og ganga s.s. í skóla, vinnu og á íþróttaæfingar.


• Hvetja til að henda rusli á rétta staði.

 

Samþykkt á 45.sambandsþingi UMFÍ, 2007 



Verkefni UMFÍ

Unglingalandsmót
Landsmót
Landsmót
Göngum um Ísland
Leiðtogaskólinn
Frjálsíþróttaskólinn
Flott án fíknar
Forvarnadagurinn
Ungmenna- og tómstundabúðir
Evrópa unga fólksins

Lotto
isafold

Sambandsaðilar