Stefna UMFÍ


  
 
Gildismat

Grundvöllur að starfi aðildarfélaganna er virðing fyrir einstaklingnum og áhugi fyrir að efla þroska og hæfileika hans á þeim sviðum sem geta hans leyfir.
Allt starf félaga skal unnið á drengilegan hátt, í anda jafnréttis, með samheldni og opna þáttöku sem flestra að leiðarljósi: í ungmennafélagsanda.
Virðing fyrir málefnalegum umræðum og lýðræðislegum aðferðum við að leiða mál til lykta er í öllu starfi aðildarfélaganna í hávegum höfð.
 
Áherslur

Landssambandið mælir með að félögin ræki eftirfarandi þætti og flétti saman við starfsemi sína:
Foreldrastarf; reynt verði að hafa foreldra sem mest með í ráðum og velja verkefni sem bjóða upp á samveru og samstarf innan fjölskyldna.
Eldri félagar og forystumenn; leitast verði við að tryggja eldri félögum og forystumönnum verðug verkefni innan félaganna og nýta þannig þekkingu þeirra og reynslu, málefnum til framdráttar. Efnt verði til samstarfs aldurshópa þannig stuðlað að því að minnka kynslóðabilið.
Heilbrigðir lifnaðarhættir; félögin undirstriki gildi heilbrigðra lifnaðarhátta, s.s. holls mataræðis og hreyfingar, hvetji ungt fólk til að temja sér slíka lifnaðarhætti og berjist fyrir vímulausu samfélagi.
Tengsl milli byggðarlaga; félögin leitist í starfi sínu við að efla samstarf og skilning milli þéttbýlis og dreifbýlis, höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar.
 
Íþróttamál

Aðildarfélögin hafa samræmda stefnu í öllu íþróttastarfi sínu, sem miðar að því að efla hvern einstakling, eftir aldir hans og getu.
 
Starfsaðferðir

Í samræmi við tilgang landssambandsins leitast aðildarfélgöin í starfi sínu við að tvinna sem mest saman uppeldisstarf og náttúruvernd.
 
Starfssvæði

Ungmennafélagshreyfingin starfar á landinu öllu, bæði í þéttbýli og dreifbýli. Miða skal við að hver sem þess óskar og er reiðubúinn að vinna í samræmi við tilgang hreyfingarinnar geti tekið þátt í starfi hennar.
 
Markmið

Landssamband ungmennafélaganna setur hreyfingunni á sambandsþingum skilgreind starfamarkmið í helstu þáttum starfsins.
 
Gildistími

Samþykktir þessar skulu enduskoðast á 41. sambandsþingi UMFÍ.
 
Tilgangur

Tilgangurinn með starfsemi ungmennafélagshreyfingarinnar er að efla þroska, getur og áræðni Íslendinga á öllum aldri, ekki síst ungs fólks. Ennfremur, að styrkja sambúð Íslendinga við landið, bæta umgengni og efla skilning á starfsemi lifríkisins. Eins og segir í sígildri yfirskrift hreyfingarinnar: ræktun lýðs og lands.
 
Skipulag

Aðild að landssambandi ungmennafélaganna (UMFÍ) eiga ungmenna og íþróttafélög, sem starfa að tilgangi hreyfingarinnar. Þessi félög geta verið svæðisbundin eða áhugamálabundin. Félögin hafa með sér samstarf og samráð innan sérstakra héraðssambanda.
 
Hlutverk

Ungmennafélagshrefyingin stefnir að því að verða fjölbreytilegasta og áhrifaríkasta almannahreyfing á Íslandi á sínu sviði, sem skiptir þannig hlutverkum eftir hinum þremur grunnþrepum hreyfingarinnar:
Landssamband ungmennafélaganna: vinnur að íþróttum, útivist, náttúruvernd og menningarmálum og samhæfir starf aðildarfélganna að þessum málum; styður ennfremur við starfsemi héraðssambanda og einstakra félaga.
Landssambandið mótar, á sambandsþingum, sameiginlega afstöðu aðildarfélaganna til sameiginlegra baráttumála og samstilltra átaka og gætir heildarhagsmuna félganna.
Héraðssambönd aðildarfélganna: eru samráðsvettvangur félaga á hverju sambandsvæði og gæta hagsmuna þeirra gagnvart landssambandinu. Þau veita einnig aðildarfélögum aðstoð og ráð, eftir því sem tök eru á og þörf er fyrir á sambandssvæðinu.
Einstök aðildarfélög: móta sér hlutverk, sem þó falla að hinum sameiginlega tilgangi hreyfingarinnar; þessi sérstöku hlutverk eru byggð á aðstæðum hvers félags og áhuga, þörfum, hefðum og möguleikun innan félaganna.

 

 

Þannig samþykkt á 40. sambandsþingi UMFÍ 
sem haldið var í Grafarvogi 1997



Verkefni UMFÍ

Unglingalandsmót
Landsmót
Göngum um Ísland
Leiðtogaskólinn
Flott án fíknar
Forvarnadagurinn
Ungmenna- og tómstundabúðir
Evrópa unga fólksins

Lotto

Sambandsaðilar