Þrastalundur

.

 

 

Tryggvi Gunnarsson,
gefandi Þrastaskógar

 

 

 

 

    

Þrastaskógur í Grímsnesi austan við Ingólfsfjall er svæði UMFÍ til skógræktar sem var gefið samtökunum af Tryggva Gunnarssyni á 77 ára afmæli hans, þann 18. október 1911. Þetta er 45 hektara landssvæði við Sogið og Álftavatn og er nú einhver fegursta gróðurperla Suðurlands. Við Sogsbrúna stendur söluskálinn Þrastalundur sem er eign UMFÍ, byggður 1967. Inni í skógi hefur verið gerður íþróttavöllur og á hverju sumri er unnið að fegrun og endurbótum á svæðinu. Fjölmargir hópar ungmennafélaga koma í skóginn á hverju sumri og framundan er að byggja hentuga aðstöðu til að taka á móti þeim.

Nýr og glæsilegur Þrastalundur var síðan vígður 12. júní 2004. Um er að ræða 400 fm. veitingastað og kemur húsið í stað eldra húsnæðis sem var orðið 40 ára gamalt. Framkvæmdir við nýja Þrastalund hófust í nóvember 2003 þannig að verkið gekk mjög vel fyrir sig.

Garðar Kjartansson sér um reksturinn í Þrastalundi.

 



"Gamli" Þrastalundur og
brúin yfir Sogið


Gesthúsið Þrastalundur.
Húsið brann árið 1943.


Fulltrúar á þingi UMFÍ í
heimsókn í Þrastaskógi 1985


Á hverju sumri er unnið að
endurbótum á aðstöðunni
í Þrastaskógi


Þrastaskógur 1999


Í Þrastaskógi
e. Jóhannes úr Kötlum
- Álftirnar kvaka, 1929

Býður ró um bjarkargöng
blómum gróin prýði. -
Þú átt nóg af þýðum söng
Þrastaskógur fríði.

Langt frá iðu lagar-sands
leita ég friðar glaður. -
Æsku-liði Ísalands
ertu griðarstaður.

Hljóðnar glaumur borgar-brags,
bönd og taumar slakna.-
Hefjast straumar helgidags,
-heiðir draumar vakna.

Skógasálin hlýja hlær,
huldumálin stirllir,
geisla-báli í brjóstin slær,
blóma-skálar fyllir.

Rætur haggast. - Reynir hátt,
rís við daggarfalli.
Svönum vaggar vatnið blátt.
Vorið flaggar gulli.

Skógarsálin hlýja hlær,
huldumálin stillir,
geisla-báli í brjóstin slær,
blóma-skálar fyllir.

Rætur haggast. - Reynir hátt
rís við daggarfulli.
Svönum vaggar vatnið blátt.
Vorið flaggar gulli.

Flögra mæður grein af grein. -
Greikka bræður sporið.
- Staka fæðist ein og ein,
eða kvæði um vorið.

Hugi friðar skógar-skart,
- skjálfa viðir grænir.
Út um hliðið óskabjart,
æsku-liðið mænir.

Þungar rastir sækja'um Sog,
- sveinar hasta á niðinn,
taka fast í árar - og
undir þrastakliðinn.

Fylla barminn fögur heit,
fjör í armi kvikar. -
Leikur bjarmi um sækna sveit,
- sól á hvarmi blikar.

Alt vill gróa - Æsku-björk
öðlast ró og stækkar.
Enn mun þróast þjóðar-mörk,
- þessi skógur hækkar.






Kort af Þrastarskógi. Smellið á kortið til að fá stærra kort (ath stór mynd 146k) 
 



Verkefni UMFÍ

Unglingalandsmót
Landsmót
Göngum um Ísland
Leiðtogaskólinn
Flott án fíknar
Forvarnadagurinn
Ungmenna- og tómstundabúðir
Evrópa unga fólksins

Lotto

Sambandsaðilar