Í áranna rás hafa þjóðir þekkt og lagt rækt við þau einföldu sannindi að lykillinn að góðri heilsu felist meðal annars í nægilegri hreyfingu og heilbrigðum lifnaðarháttum.
Rannsóknir hafa leitt í ljós að hreyfingarleysi getur haft í för með sér fjölmarga sjúkdóma. Offita er algengasta afleiðing hreyfingarleysis og stuðlar oft að því að aðrir kvillar og/eða langvinnir sjúkdómar hrjái einstaklinga. Þannig eru þeir sem þjást af offitu taldir líklegri til að glíma við áunna sykursýki, hjarta- og æðarsjúkdóma, krabbamein, andlega vellíðan, gallsteina, gigt og kvilla í stoðkerfi, svo sem mjóbaksverki, slit í hnjám, baki, mjöðmum, ökklum og hrygg.
Ungmennafélag Íslands hefur ákveðið að gefa verkefnum á sviði almenningsíþrótta enn meira vægi í starfsemi félagsins í því augnamiði að vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi hreyfingar og hollra lifnaðarhátta. Ástundun almenningsíþrótta höfðar til allra aldurshópa og tekur mið af hverjum einstaklingi, hver stundar sína íþrótt á sínum forsendum. Mikilvægast er að sér hver einstaklingur finni íþrótt sem hann getur stundað sér til heilsubótar og síðast en ekki síst ánægju.












