Fjölskyldan á fjallið er einn liður í verkefninu ganga.is. Sambandsaðilar stinga uppá fjalli á sínu svæði til að setja póstkassa á toppi fjallsins. Settir hafa verið póstkassar með gestabókum á 20 fjöllum víðsvegar um landið, en öll þessi fjöll eiga það sameiginlegt að vera tiltölulega létt yfirferðar.












