Frjálsíþróttaskóli
Frjálsíþróttaskóli UMFÍ var fyrst starfræktur árið 2008. Skólinn er fyrir ungmenni 11-18 ára og stendur yfir í 5 daga. Skólinn er starfræktur á nokkrum stöðum á landinu og er gott tækifæri fyrir þá sem vilja reyna fyrir sér í fyrsta sinn eða auka við getu sína. Sumarið 2009 var skólinn starfræktur á 9 stöðum á landinu.
Skólinn er starfræktur í samstarfi við Frjálsíþróttasamband Íslands.












