Landsmót

Fyrsta Landsmót UMFÍ var haldið á Akureyri árið 1909.  Nú hafa verið haldin 26 Landsmót, það síðasta á Akureyri árið 2009. 

Á Landsmótum er keppt í um 30 greinum, hefðbundnum íþróttagreinum sem og svokölluðum starfsíþróttum sem notið hafa mikilla vinsælda.

Þátttaka á Landsmótum UMFÍ hefur verið góð og ætíð er sérstök stemming sem mótunum fylgir.

Þátttakendur á síðasta Landsmóti UMFÍ voru um 2.700 talsins.  Gestir mótanna eru á bilinu 12.000 – 20.000 en flestir hafa þeir verið á Laugarvatni árið 1965, 25.000 talsins.

Sjá heimasíðu: http://landsmotumfi.is/



Verkefni UMFÍ

Unglingalandsmót
Landsmót
Göngum um Ísland
Leiðtogaskólinn
Flott án fíknar
Forvarnadagurinn
Ungmenna- og tómstundabúðir
Evrópa unga fólksins

Lotto

Sambandsaðilar