Eldri ungmennafélagar

Líkamsþjálfun fyrir eldra fólk er mjög mikilvæg og sýna rannsóknir framá að með reglulegri hreyfingu er hægt að hægja á þeim öldrunarbreytingum sem verða með hækkandi aldri. Með markvissri og stigvaxandi þjálfun eykst vöðvastyrkur, jafnvægi verður betra, úthald verður meira, aukinn liðleiki, hægari beinþynning, bætt starfsemi hjarta og æðakerfis og andleg líðan verðu meiri en hjá þeim sem hreyfa sig ekki.

 

Gæfuspor er verkefni sem er ætlað að hvetja fólk eldra en 60 ára til að fara út að ganga með góðum hópi jafninga. Allir geta tekið þátt í verkefninu á sínum forsendum. Ekki er um keppni að ræða heldur setur hver þátttakandi sér markmið við sitt hæfi. Lögð er áhersla á að hóparnir fari reglulega út að ganga í viku hverri, hittist á fyrirfram ákveðnum stöðum og síðan gengur hver og einn á sínum hraða og sína vegalengd. Hópar á hverjum stað fyrir sig velja síðan stað og tíma sem hentar til vikurlegra gönguferða. Í dag eru fjölmargir gönguhópar eldra fólks víðvegar um landið og er það vel. Gæfusporið á að vera hvatning fyrir enn fleiri til að taka fyrsta skrefið.



Verkefni UMFÍ

Unglingalandsmót
Landsmót
Göngum um Ísland
Leiðtogaskólinn
Flott án fíknar
Forvarnadagurinn
Ungmenna- og tómstundabúðir
Evrópa unga fólksins

Lotto

Sambandsaðilar