Menningarmál
Menningarstarf hefur fylgt starfi hreyfingarinnar frá upphafi. Leikfélög eru starfandi víða um land og mörg félög standa fyrir árlegum viðburðum. Útgáfa fréttabréfa og tímarita hefur einnig verið hluti af menningarstarfi hreyfingarinnar í gegnum tíðina. Markmið UMFÍ er að styðja og efla það menningarstarf sem fyrir hendi er enn frekar og hvetja fleiri félög til dáða.












