Umhverfisverðlaunum UMFÍ er úthlutað í samvinnu við Umhverfissjóð verslunarinnar. Eftirtaldir aðilar hafa fengið verðlaunin.
1996: Hótel Geysir fyrir hve snyrtilega og vel hafi verið gengið frá umhverfinu í kringum hótelið.
1997: Sorpa fyrir stórstígar framfarir í sorpeyðingu og endurvinnslu úrgangs á höfuðborgarsvæðinu
1998: Egilsstaðir – Austur Hérað fyrir snyrtilega umgengni bæjarfélagsins í heild.
1999: Laugarnesskóli fyrir kennslu sem hefur það að leiðarljósi að glæða skilning nemandans á samspili manna og náttúru og efla virðingu hans fyrir umhverfi sínu.
2000: Hvanneyrarstaður fyrir góðan árangur í jarðgerð og frumkvöðlastarf á því sviði hér á landi.
2001: Ferðamálasamtök Vestfjarða fyrir markvissa miðlun á fróðleik um umhverfisvæna ferðaþjónustu auk áherslna á útivist og umhverfisvernd við markaðssetningu Vestfjarða.
2002: Landgræðslustjóra Sveini Runólfssyni fyrir framúrskarandi störf í þágu umhverfismála.
2003: Vesturfarasetrið á Hofsósi: Verðlaun veitt fyrir varðveislu menningarverðmæta og uppbyggingu gamla þorpskjarnans á Hofsósi.
2005: Blái herinn fyrir brautryðjendastarf við hreinsun hafna landsins.
2010: Ómar Ragnarsson fyrir baráttu sína fyrir verndun náttúru Íslands.












