Ungmennaráð
Ungmennaráð UMFÍ er skipað sjö fulltrúum á aldrinum 15 – 25 ára. Markmið ungmennaráðs er að ungmenni fái aukna ábyrgð og tækifæri til að taka þátt í ákvarðanatöku um mótun þess félags- og tómstundastarfs sem þau eru virk í og tengja skoðanir sínar í inn í starf ungmennafélagshreyfingarinnar.
Stjórn UMFÍ skipar í ráðið til tveggja ára í senn. Heimilt er að skipa sama fulltrúann oftar en einu sinni í ráðið ef hann er innan aldursmarkanna.
Stjórn og framkvæmdastjórn UMFÍ geta vísað málum til Ungmennaráðs til umfjöllunar og umsagnar.
Áhugasamir geta sótt um inngöngu í ungmennaráðið með því að senda póst á umfi@umfi sem kemur umsóknum áfram til stjórnar UMFÍ.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram:
• Nafn
• Kennitala
• Sambandsaðili UMFÍ
• Áhugamál / Reynsla
• Hvers vegna viltu vera í ungmennaráði UMFÍ
Nánari upplýsingar um ungmennaráðið er að finna í síma 568-2929/umfi@umfi.is eða hjá fulltrúum ungmennaráðsins.












