Myndir frá ráðstefnu má finna hér



PDF
 

Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði - ályktun samþykkt


Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði var haldin í annað sinn á Laugum 7. – 9. Apríl s.l. um 50 þátttakendur voru á ráðstefnunni sem gekk mjög vel. Mikil ánægja var með það sem fram fór.

 

Þema ráðstefnunnar var lýðræði og mannréttindi og var unnið með verkefni úr bókinni Kompás, sem er handbók um lýðræði og mannréttindi og kom út í íslenskri þýðingu í lok síðasta árs.

 

Þátttakendur skiptust sér á vinnustofur þar sem þeir gátu valið á milli ræðumennsku og fundarskapa og kynningu á Evrópu unga fólksins þar sem þátttakendur fengu að spreyta sig á að sækja um styrk. Góður rómur var af báðum vinnustofunum og vildu þátttakendur helst ekki hætta.

 

Í lok ráðstefnunnar samþykktu þátttakendur ályktun til stjórnvalda og voru miklar og góðar umræður um hvernig ályktunin skildi hljóða. Það er greinilegt að þetta unga fólk sem sat ráðstefnunna veit hvað það vill og er tilbúið að leggja sitt til samfélagsins.

 

Ályktunin er svohljóðandi:


Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði haldin á Laugum í Sælingsdal 7.-9. apríl 2010 beinir því til stjórnvalda að bæta þurfi upplýsingaflæði til ungs fólks og að hlustað verði á rödd þeirra og að áhugi sé gagnkvæmur. Hafa verður samráð við ungt fólk þegar teknar eru ákvarðanir sem varða málefni þeirra eins og segir í 12. gr Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Fjölmörg dæmi eru til um að ungt fólk sé hunsað þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að ná eyrum stjórnvalda.


Ein leið til að auka aðkomu ungs fólks að ákvarðanatöku er að sveitarfélög stofni ungmennaráð. Í öllum sveitarfélögum á landinu er að finna ungt fólk sem á rétt á því að á það sé hlustað. Við viljum að stjórnvöld bindi í lög að sveitarfélög stofni ungmennaráð. Jafnframt skorum við á sveitarfélög sem hafa ekki enn stofnað ungmennaráð að gera það eins fljótt og mögulegt er og fulltrúar þess verði frá sem breiðustum hópi s.s. æskulýðs- og íþróttafélögum auk framhaldsskóla og grunnskóla. Allir hafi jöfn tækifæri til setu í ungmennaráði burtséð frá menningar- og félagslegum bakgrunni. Tryggja þarf gagnkvæmt samstarf og samskipti ungmennaráða og sveitarfélaga og kynna starfsemi þeirra vel fyrir ungu fólki til að tryggja áhuga og þátttöku. Einnig teljum við nauðsynlegt að sveitarfélög fylgi eftir virkni ungmennaráða, sýni starfsemi þeirra áhuga og hrindi hugmyndum þeirra í framkvæmd.


Ráðstefnan leggur sömuleiðis áherslu á að gætt sé jafnræðis þegar stjórnvöld úthluta styrkjum til ungmennastarfs. Ungt fólk hefur mismunandi áhugamál og mikilvægt er að öll uppbyggileg starfsemi ungs fólks njóti stuðnings Stjórnvalda.Þátttaka unga fólksins er ekki síður mikilvæg svo þeir sem eldri eru fái notið hinnar einstöku sýnar ungs fólks á okkar nánasta umhverfi.

 


Verkefni UMFÍ

Unglingalandsmót
Landsmót
Göngum um Ísland
Leiðtogaskólinn
Flott án fíknar
Forvarnadagurinn
Ungmenna- og tómstundabúðir
Evrópa unga fólksins

Lotto

Sambandsaðilar