Ungmennafélag Íslands stofnsetti Leiðtogaskólann árið 2001 til að halda utan um fræðslustarf UMFÍ. Hlutverk skólans er að sjá félagsmönnum UMFÍ fyrir fræðslu í félagsstarfi og stuðla að nýjungum í starfi hreyfingarinnar. Leiðtogaskólinn býður upp á kröftug námskeið fyrir alla sem vilja ná árangri í félagsstörfum. Leitast er við að bjóða upp á vönduð námskeið með góðum leiðbeinendum sem hægt er að halda hvar sem er á landinu. (Leiðtogaskólinn býður jafnframt öðrum en félagmönnum námskeiðin sé þess óskað).

Share on Facebook Meira

Ungmennafélag Íslands í samvinnu við Bændasamtök Íslands og Kvenfélagasamband Íslands standa fyrir félagsmálafræðslu um land allt  undir yfirskriftinni ,,Sýndu hvað í þér býr.“ Hlutverk námskeiðsins er að sjá félagsmönnum fyrir fræðslu í ræðumennsku og fundarsköpum.  Þátttakendur fá æfingu í framkomu, framsögn og þjálfun í fundarsköpum. Skráning á námskeiðin fer fram á skrifstofu UMFÍ í síma 568-2929.

Námskeiðið hentar félagasamtökum, stjórnum, ráðum og einstaklingum sem vilja styrkja sig í framkomu. Námskeiðin henta mjög vel þeim sem eru að stíga sín fyrstu spor í félagastarfi en ekki síður þeim sem hafa reynslu. Allir eru velkomnir á námskeið hvort sem þeir eru í félagi eður ei og hvetjum við eindregið áhugasama , ungmennafélög, kvenfélög, búnaðarfélög, fyrirtæki, skóla, vinahópa og einstaklinga til að sækja námskeið.

Á námskeiðunum er farið yfir ýmsa þætti er tengjast ræðumennsku, svo sem að taka til máls, framkomu, ræðuflutning, raddbeitingu, skipulag ræðu og fleira. Einnig er farið í fundarsköpun, hvernig skal boða til funda, dagskrá funda, fundareglur, fundaskipan, umræður, meðferð tillagna og kosningar.

Share on Facebook Meira

Námskeiðið hentar félagasamtökum, sem valgrein í menntastofnunum, stjórnum, ráðum  og almenningi? Námskeiðið skipist í þrjá þætti og hægt að fá hluta af námskeiði  eftir þörfum: Framkoma og ræðumennska, fundarstjórnun og að starfa í stjórn.
Á félagsmálanámskeiði kynnast nemendur lýðræðislegu félagsstarfi sem virkir þátttakendur. Þeir fá þjálfun í að koma fyrir sig orði, tjá sig og hlusta á aðra, komast að samkomulagi um erfið ágreiningsmál og sætta sig við að vera í minnihluta. Þátttakendur fá æfingu í framkomu, framsögn og uppbyggingu á ræðum. Þjálfun í fundarsköpum, læra að vera í meirihluta og sýna sanngirni við fundarstjórn. Stýra og taka þátt í nefndarstörfum, undirbúa kosningar og greiða atkvæði. 30 kennslustundir.

Share on Facebook Meira

Námskeið fyrir þá sem koma að skipulagningu viðburða s.s. íþróttamóta, hverfis- eða bæjarhátíða. Um er að ræða grunnnámskeið í viðburðastjórnun.  Farið er yfir helstu þætti þegar skipuleggja á viðburð, allt frá hugmyndavinnu til framkvæmdar og frágangs.  Farið er yfir hugmyndavinnu, markhóp, markaðssetningu, fjárhagsáætlun, öflun samstarfsaðila, skipurit, verkaskiptingar, framkvæmd og ýmis vinnuferli. 6-8 kennslustundir.

Share on Facebook Meira

Öflugt námskeið ætlað þeim sem áhuga hafa á að starfa í forystusveit hvort heldur í félagsstarfi eða atvinnulífinu. Þátttakendur fá þjálfun sem undirbýr þá til að takast á við þau fjölbreyttu verkefni sem forystumaður í félagi þarf að kunna skil á.
Meðal annars er farið í eftirfarandi:
Fundarstörf og fundarstjórnun, framkomuþjálfun, leiðtogafræðslu, samskipti við fjölmiðla, þjálfun fyrir viðtöl í fjölmiðlum, greinaskrif í fjölmiðla, ýmsar æfingar sem stuðlað geta að leiðtogahæfni.
30 kennslustundir.

Share on Facebook Meira

Námskeiðið er ætlað fólki sem starfar í stjórnum félagasamtaka.  Á námskeiðinu er farið í helstu skref stefnumótunar út frá þörfum námskeiðshafa. Farið er í stöðumat, framtíðarsýn, stefnumótun og framkvæmd. 4-6 kennslustundir.

Share on Facebook Meira

Á þessu námskeiði er kynnt fyrir félögum hvar hægt er að sækja um styrki. Helstu punktar sem hafa verður í huga við styrkumsóknir og fyrstu samskipti við fyrirtæki þegar leitað er eftir styrkjum. 
3 kennslustundir.

Share on Facebook Meira


Verkefni UMFÍ

Unglingalandsmót
Landsmót
Göngum um Ísland
Leiðtogaskólinn
Flott án fíknar
Forvarnadagurinn
Ungmenna- og tómstundabúðir
Evrópa unga fólksins

Lotto

Sambandsaðilar