Félagsmálanámskeið
Námskeiðið hentar félagasamtökum, sem valgrein í menntastofnunum, stjórnum, ráðum og almenningi? Námskeiðið skipist í þrjá þætti og hægt að fá hluta af námskeiði eftir þörfum: Framkoma og ræðumennska, fundarstjórnun og að starfa í stjórn.
Á félagsmálanámskeiði kynnast nemendur lýðræðislegu félagsstarfi sem virkir þátttakendur. Þeir fá þjálfun í að koma fyrir sig orði, tjá sig og hlusta á aðra, komast að samkomulagi um erfið ágreiningsmál og sætta sig við að vera í minnihluta. Þátttakendur fá æfingu í framkomu, framsögn og uppbyggingu á ræðum. Þjálfun í fundarsköpum, læra að vera í meirihluta og sýna sanngirni við fundarstjórn. Stýra og taka þátt í nefndarstörfum, undirbúa kosningar og greiða atkvæði. 30 kennslustundir.












