Sýndu hvað í þér býr
Ungmennafélag Íslands í samvinnu stendur fyrir félagsmálafræðslu um land allt undir yfirskriftinni ,,Sýndu hvað í þér býr.“ Hlutverk námskeiðsins er að sjá félagsmönnum fyrir fræðslu í ræðumennsku og fundarsköpum. Þátttakendur fá æfingu í framkomu, framsögn og þjálfun í fundarsköpum. Skráning á námskeiðin fer fram á skrifstofu UMFÍ í síma 568-2929 eða á netfanginu sigurdur@umfi.is
Námskeiðið hentar félagasamtökum, stjórnum, ráðum og einstaklingum sem vilja styrkja sig í framkomu. Námskeiðin henta mjög vel þeim sem eru að stíga sín fyrstu spor í félagastarfi en ekki síður þeim sem hafa reynslu. Allir eru velkomnir á námskeið hvort sem þeir eru í félagi eður ei og hvetjum við eindregið áhugasama , ungmennafélög, kvenfélög, búnaðarfélög, fyrirtæki, skóla, vinahópa og einstaklinga til að sækja námskeið.
Á námskeiðunum er farið yfir ýmsa þætti er tengjast ræðumennsku, svo sem að taka til máls, framkomu, ræðuflutning, raddbeitingu, skipulag ræðu og fleira. Einnig er farið í fundarsköpun, hvernig skal boða til funda, dagskrá funda, fundareglur, fundaskipan, umræður, meðferð tillagna og kosningar.












