Landsmót UMFÍ 2009

26. Landsmót UMFÍ var haldið á Akureyri dagana 9.-12. júlí 2009.  Um var að ræða sérstakt afmælismót þar sem 100 ár voru liðin frá því að fyrsta mótið var haldið og það einnig á Akureyri.

Á Landsmótinu var keppt í um 30 greinum, hefðbundnum íþróttagreinum sem og svokölluðum starfsíþróttum sem njóta jafnan mikilla vinsælda. 

Þátttaka á mótinu var gríðarlega góð en keppendur til landsmótsstiga voru 1.521.  Ef saman er talin þátttaka í kynningargreinum, ráðstefnum og öðru því sem boðið var uppá voru þátttakendur 2.725 talsins.

Sjaldan eða aldrei hefur verið boðið upp á jafn glæsilega keppnisaðstöðu og á Akureyri enda eru íþróttamannvirki bæjarins afar glæsileg.  Akureyrarbær réðst í það stórvirki að byggja nýjan íþróttaleikvang með stúku fyrir 1000 manns á svokölluðu Hamarssvæði sem einnig er kallað Þórssvæðið.  Þessi leikvangur er klárlega einn sá allra glæsilegasti á landinu.

Dagskrá mótsins var afar fjölbreytt, ekki síst  menningar- og afþreyingardagskráin sem var fléttuð við keppnisdagskrána.

Sigurvegari í stigakeppni Landsmótsins var ÍBA með 1.819 stig.

UMSE og UFA voru mótshaldarar.



Verkefni UMFÍ

Unglingalandsmót
Landsmót
Göngum um Ísland
Leiðtogaskólinn
Flott án fíknar
Forvarnadagurinn
Ungmenna- og tómstundabúðir
Evrópa unga fólksins

Lotto

Sambandsaðilar