Landsmót UMFÍ 50+
Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið í Húnaþingi vestra á Hvammstanga helgina 24.-26. júní. Mótið er fjölskylduhátíð með fjölbreyttri dagskrá. Ásamt keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum verða fyrirlestrar og sýningahópar. Allir, jafnt ungir sem eldri, eiga að finna eitthvað við sitt hæfi þessa helgi sem mótið fer fram.
Framkvæmd mótsins verður í höndum Ungmennafélags Íslands og USVH í samstarfi við sveitarfélagið Húnaþing vestra. Aðrir samstarfsaðilar að mótinu eru Félag áhuga fólks um íþróttir aldraðra og Landssamband eldri borgara.
Keppnisgreinar á mótinu: Blak, Bridds, Boccia, Badminton, Frjálsar íþróttir, Fjallaskokk, Hestaíþróttir, Golf, Pútt, Línudans, Skák, Sund, þríþraut.
Aðstaða á Hvammstanga til íþróttaiðkana er góð. Húnaþing vestra rekur íþróttamiðstöð á Hvammstanga. Íþróttahús var byggt við búningsaðstöðu og sundlaug á árunum 2001 og 2002. Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra var svo formlega opnuð þann 4. september 2002. Þá er þar risin glæsileg reiðhöll.
Sigurður Guðmundsson er framkvæmdastjóri Landsmóts UMFÍ 50+. Netfangið hans er sigurdur@umfi.is og sími 861-3379













