Skinfaxi

Skinfaxi hefur verið gefinn út óslitið frá 1909 Skinfaxi kemur út fjórum sinnum á ári og er ársáskriftargjald en er ennfremur dreift til sambandsaðila og félaga innan þess. Blaðið hefur einnig jafnan verið dreift vítt og breitt um landið og til grunn- og framhaldsskóla í landinu. Blaðið flytur fréttir og greinar úr starfi hreyfingarinnar, íþróttir, menningu, forvarnir  og önnur áhugamál félagsmanna


Vormenn Íslands

Vormenn Íslands, saga UMFÍ í 100 ár var gefin út 2007. Jón M. Ívarsson, sagnfræðingur, ritaði sögu hreyfingarinnar. Bókin er í stóru broti, rúmlega 700 síður og prýdd um 800 ljósmyndum. Hún er í senn íþróttasaga og þjóðlífssaga í 100 ár. Sú saga er samofin sögu íslensku þjóðarinnar og speglar vel tíðarandann á hverjum tíma. Bókina er hægt að kaupa í þjónustumiðstöð UMFÍ.


 

Ræktun lýðs og lands

Ræktun lýðs og lands kom út 1983 í tengslum við 75 ára afmæli UMFÍ. Gunnar Kristjánsson ritaði og tók saman rit um starfsemi UMFÍ í 75 ár. Í bókinni er leitast við að lýsa starfinu og á hvern hátt hin ýmsu verkefni hafa þróast í tímans rás.


Ræktun lýðs og lands

Saga Landsmóta UMFÍ

Saga Landsmóta UMFÍ kom út 1992 en að ritun hennar komu Viðar Hreinsson, Jón Torfason og Höskuldur Þráinsson. Meginmarkmið með rituninni eru tvö: Annars vegar að koma til skila öllum tiltækum fróðleik um framkvæmd landsmótanna, úrslit og breytingar og hins vegar að reyna að miðla hinum einstæða anda landsmótanna. Þetta tvennt er kryddað með margvíslegum fróðleik um það íþróttafólk sem í gegnum tíðina hefur tekið þátt í landsmótunum.
Bæklingar og margvíslegt fræðsluefni og verkefni sem UMFÍ stendur fyrir er jafnan gefið út. Það efni má finna á heimasíðunni og einnig í þjónustumiðstöð UMFÍ


Bæklingar

Bæklingar og margvíslegt fræðsluefni og verkefni sem UMFÍ stendur fyrir er jafnan gefið út. Það efni má finna á heimasíðunni og einnig í þjónustumiðstöð UMFÍ



Verkefni UMFÍ

Unglingalandsmót
Landsmót
Landsmót
Göngum um Ísland
Leiðtogaskólinn
Frjálsíþróttaskólinn
Flott án fíknar
Forvarnadagurinn
Ungmenna- og tómstundabúðir
lm50_umsoknir_13_14_180px
Evrópa unga fólksins

Lotto
isafold

Sambandsaðilar