Erlend samskipti
Ungmennafélag Íslands er í samskiptum og samstarfi við ýmis samtök og aðila víðs vegar um heiminn. Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir þá helstu:
NSU.
Nordisk samorganisation for ungdomarbejde
UMFÍ er í samtökum ungmennafélaga á norðurlöndunum "Nordisk samorganisation for ungdomarbejde - NSU". Á þeim vettvangi er unnið mikið af sameiginlegum verkefnum sem tengja Norðurlöndin saman. Þar má nefna ungmennaskipti, ungmennavikur, markmiðsráðstefnur og ungbændaráðstefnur.
Sjá heimasíðu skólans : http://www.nsu.is/
ISCA
International Sport and Culture Association
UMFÍ er aðila að ISCA sem eru samtök um almenningsíþróttir og menningu hinna ýmsu landa í heiminum.
Sjá heimasíðu skólans: http://isca-web.org
Ungmennaskipti
Ungmennaskipti milli Noregs, Svíþjóðar og Íslands fara fram á hverju ári. Þar gefst íslenskum ungmennum kostur á að dvelja í 3 mánuði sér að kostnaðarlausu við leik og störf annað hvort í Noregi eða Svíþjóð. Dvalið er á heimilum víðs vegar í viðkomandi landi og koma unglingarnir heim vel talandi á sænsku eða norsku. Ferðakostnaður innanlands er borgaður af fjölskyldunum sem dvalið er hjá en viðkomandi þarf að sjá fyrir ferðakostnaði fram og tilbaka frá Íslandi.
DGI
Danmarks Gymnastik- og Idrætsforeninger
Það má segja að DGI í Danmörku sé eins konar systursamtök UMFÍ. Mikið og gott samstarf hefur verið á milli þessara tveggja samtaka og hafa báðir aðilar notið góðs af því.
Sjá heimasíðu skólans: http://www.dgi.dk/
VNU
Vestnordisk Ungdoms forum
Íþróttalýðháskólar í Danmörku
Íþróttalýðháskólar bjóða upp á skemmtilegt og spennandi nám fyrir ungt fólk á átjánda ári og eldri. Skólarnir leggja áherslur á mismunandi íþróttagreinar en flestir bjóða þeir upp á allt mögulegt. Námið er krefjandi og uppbyggjandi og hver dagur býður upp á ný ævintýri.
UMFÍ hefur gert samstarfssamning við 10 íþróttalýðháskóla í Danmörku. Skólarnir eru vítt og breitt um landið og leggja áherslur á mismunandi íþróttagreinar.
UMFÍ getur veitt nemendum styrk til dvalarinnar og er hægt að hafa samband við þjónustumiðstöð UMFÍ s. 568 2929 um nánari upplýsingar eða á omar (hja)umfi.is
Hægt er að sækja um styrk rafrænt á netinu með því að fylla út umsóknareyðublaðið hér fyrir neðan.
Skólar:
Sønderborg
Idrætshøjskolen i Sønderborg er staðsettur í frábæru umhverfi rétt við landamæri Danmerkur og Þýskalands. Hægt er að leggja stund á allar almennar íþróttagreinar, t.d. fótbolta, handbolta og badminton.
Sjá heimasíðu skólans: www.ihs.dk
Ollerup
Gymnastik højskolen i Ollerup er einn þekktasti fimleikaskóli Danmerkur en einnig er boðið upp á flestar aðrar íþróttagreinar. Mjög góð fimleika aðstaða er í skólanum með nýrri stökkhöll. Skólinn er í fallegu umhverfi rétt fyrir utan Svenborg á Fjóni.
Sjá heimasíðu skólans: http://www.ollerup.dk/
Gerlev
Gerlev Idrætshøjskole er á góðum stað á Sjálandi. Boðið er upp á flest allar íþróttagreinar en aðaláhersla er lögð á körfubolta, bardagaíþróttir, ævintýraferðir, skíði, snjóbretti, dans, fitness og fótbolta.
Sjá heimasíðu skólans: http://www.gerlev.dk/
Viborg
Gymnastik og Idrætshøjskolen i Viborg staðsettur við Viborg sem er norðarlega á Jótlandi. Skólinn býður upp á allar almennar íþróttagreinar en sérstök áhersla er lögð á fimleika, handbolta, óbyggðaferðir, sund og dýfingar.
Sjá heimasíðu skólans: http://www.vff.dk/
Århus
Idrætshøjskolen i Århus er staðsettur í hjarta Árósa, þaðan sem mörg af bestu boltaliðum Dana koma. Skólinn býður upp á handbolta- og fótboltaakademíu, dansakademíu og flestar aðrar íþróttagreinar.
Sjá heimasíðu skólans: http://www.ihaarhus.dk/
Álaborg
Nordjyllands Idrætshøjskole er yngsti íþróttalýðháskóli Danmerkur og er staðsettur um 20 km norður af Álaborg. Hægt er að leggja stund á allar almennar íþróttir, t.d. fótbolta, handbolta, badminton og dans, ásamt undirbúningsmáni fyrir lögregluskóla.
Sjá heimasíðu skólans: http://www.nih.dk/
Bosei
Bosei íþróttalýðháskólinn er staðsettur í Præstö, um klukkutíma akstur frá Kaupmannahöfn. Helstu kennslugreinarnar eru karate, júdó og taekwondo auk fjölda annara greina. Öll aðstaða og aðbúnaður er einstaklega góður og kennarar skólans er á heimsmælikvarða.
Sjá heimasíðu skólans: http://www.bosei.dk
Den Skandinaviske Designhøjskole
Skólinn er staðsettur í Randers og eins og nafnið gefur til kynna þá snýst allt um hönnun í þessum skemmtilega skóla. Möguleikarnir eru fjölmargir og þess virði að kíkja á heimasíðuna og sjá hvað í boði er.
Sjá heimasíðu skólans: www.designhojskolen.dk
Musik og Teaterhøjskolen
Þessi skóli iðar af lífi frá morgni til kvölds. Það er fjölmargt sem nemendum stendur til boða í skólnum svo sem tónlist, söngur, leiklist og dans svo eitthvað sé nefnt. Kíktu á heimasíðuna og sjáðu hvað er í boði.
Sjá heimasíðu skólans: www.musikogteater.dk
Vejle Idrætshøjskole
Skólinn hefur uppá fjölmargt að bjóða; fitness, sund, golf, hjólreiðar, handbolta, fótbolta ofl. ofl. Þetta er skemmtilegur skóli í frábæru umhverfi. Gefðu þér smá stund og skoðaðu heimasíðu skólans.
Sjá heimasíðu skólans: www.vih.dk
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðum skólanna












