Íþróttalýðháskólar í Danmörku
Íþróttalýðháskólar bjóða upp á skemmtilegt og spennandi nám fyrir ungt fólk á átjánda ári og eldri. Skólarnir leggja áherslur á mismunandi íþróttagreinar en flestir bjóða þeir upp á allt mögulegt. Námið er krefjandi og uppbyggjandi og hver dagur býður upp á ný ævintýri.
UMFÍ hefur gert samstarfssamning við 6 íþróttalýðháskóla í Danmörku. Skólarnir eru vítt og breitt um landið og leggja áherslur á mismunandi íþróttagreinar.
UMFÍ getur veitt nemendum styrk til dvalarinnar og er hægt að hafa samband við þjónustumiðstöð UMFÍ s. 568 2929 um nánari upplýsingar eða á omar (hjá) umfi.is
Hægt er að sækja um styrk rafrænt á netinu.
Skólar
Sønderborg
Idrætshøjskolen i Sønderborg er staðsettur í frábæru umhverfi rétt við landamæri Danmerkur og Þýskalands. Hægt er að leggja stund á allar almennar íþróttagreinar, t.d. fótbolta, handbolta og badminton.
Heimasíða skólans: www.ihs.dk
Ollerup
Gymnastik højskolen i Ollerup er einn þekktasti fimleikaskóli Danmerkur en einnig er boðið upp á flestar aðrar íþróttagreinar. Mjög góð fimleika aðstaða er í skólanum með nýrri stökkhöll. Skólinn er í fallegu umhverfi rétt fyrir utan Svenborg á Fjóni.
Heimasíða skólans: www.ollerup.dk
Gerlev
Gerlev Idrætshøjskole er á góðum stað á Sjálandi. Boðið er upp á flest allar íþróttagreinar en aðaláhersla er lögð á körfubolta, bardagaíþróttir, ævintýraferðir, skíði, snjóbretti, dans, fitness og fótbolta.
Heimasíða skólans: www.gerlev.dk
Viborg
Gymnastik og Idrætshøjskolen i Viborg staðsettur við Viborg sem er norðarlega á Jótlandi. Skólinn býður upp á allar almennar íþróttagreinar en sérstök áhersla er lögð á fimleika, handbolta, óbyggðaferðir, sund og dýfingar.
Heimasíða skólans: www.vff.dk
Århus
Idrætshøjskolen i Århus er staðsettur í hjarta Árósa, þaðan sem mörg af bestu boltaliðum Dana koma. Skólinn býður upp á handbolta- og fótboltaakademíu, dansakademíu og flestar aðrar íþróttagreinar.
Heimasíða skólans: www.ihaarhus.dk
Álaborg
Nordjyllands Idrætshøjskole er yngsti íþróttalýðháskóli Danmerkur og er staðsettur um 20 km norður af Álaborg. Hægt er að leggja stund á allar almennar íþróttir, t.d. fótbolta, handbolta, badminton og dans, ásamt undirbúningsmáni fyrir lögregluskóla.
Heimasíða skólans: www.nih.dk












