Línubeiting
Reglugerð samþykkt á starfsíþróttaþingi UMFÍ á Akureyri 24. apríl 2010
Tilhögun keppni.
1. Keppnin er í því fólgin að beita línu. Beita skal 100 öngla úr stokk og skal öngulstærð vera nr. 6 eða 7.
2. Útbúa skal keppnisaðstöðu sem líkasta því sem er við venjulega beitingu í skúr. Þó getur keppnin allt eins farið fram úti sem inni.
3. Hver keppandi fær afmarkað vinnupláss. Hann þarf að hafa borð fyrir beituna sem hann fær skorna, aðstöðu til að hengja stokkinn upp, línustamp og stól undir hann. Hver keppandi fær 110 beitur og skal hún vera svo góð sem kostur er á.
4. Ef keppendur eru svo margir að eigi verður því við komið að allir keppi í einu skal keppt í riðlum og ræður handahóf röðun í riðla. Draga skal um vinnupláss.
5. Þar sem því verður komið við skal rekja línuna úr stömpunum á þann hátt að þeim er komið fyrir á tengivagni eða bílpalli og útbúnaður fyrir línulögn settur á pallinn. Aka skal með 15–20 km. hraða og láta línuna renna út. Að því loknu skal dæma um lagningu línunnar.
6. Þriggja manna dómnefnd skal dæma í keppninni og skal gefa fyrir í stigum.
Stigatafla:
A. Beitning:
Beitu krækt á öngul 20 stig
Niðurlagning línu 20 stig
Vinnulag 20 stig
Tími 40 stig
Samtals 100 stig.
B.Lagning línu:
Greið lína 25 stig
Beita föst á önglum 25 stig
Samtals 50 stig
Heildarstigafjöldi 150 stig
Dómur:
A. Beitu krækt á öngul: Dæmt skal um það hvernig keppandi krækir önglinum í beituna. Draga skal frá stig, sé ekki krækt í þykkasta hluta beitunnar eða mjög utarlega í hana.
A. Niðurlagning línu: Dæma skal um það hvernig línan er lögð niður í stampinn og beitu raðað og draga frá stig sé það illa gert.
A. Vinnulag: Athuga skal hvernig keppandi vinnur, vinnustöð hans, handtök, hreyfingar, snyrtimennsku og skipulag vinnunnar.
A. Tími: Fyrir að ljúka beitningunni af á 6 mínútum skal gefa 40 stig. Draga skal frá 1 stig fyrir hverjar 15 sek. framyfir.
B.Greiðlína: Ef línan rennur greið út skal gefa 25 stig, en 1 stig tapast fyrir hvern krók sem flækist.
B. Beita föst í önglum: Athuga skal hvernig beitan tollir á önglunum eftir að línan hefur verið lögð. Gefa skal 25 stig fyrir klára línu en síðan draga frá 1 stig fyrir hvern beran öngul.












