Pönnukökubakstur


Reglugerð samþykkt á starfsíþróttaþingi UMFÍ á Akureyri 24. apríl 2010

Keppnisfyrirkomulag / reglur:

1. Dæmt er eftir hraða, fjölda, leikni, útliti og bragðgæðum.

2. Uppskriftina velur keppandinn sjálfur að því undanskildu að í henni eiga að vera 150 grömm hveiti og að minnsta kosti 1 egg (meðalstórt).

3. Keppandi leggur fram nákvæma uppskrift í þremur eintökum áður en keppni hefst. Nafn keppanda og héraðssambands skal koma fram á blaðinu.

4. Mótshaldari leggur til algeng efni í pönnukökur: Hveiti, sykur, egg, mjólk, smjörlíki, matarolíu, lyftiduft, sódaduft (natron) og bökunardropa. Ef óskað er eftir öðrum efnum/bragðefnum eða einhverri sérstakri tegund af hráefni verða keppendur að útvega þau sjálfir og hafa meðferðis. Keppandi skal þó nota það hveiti sem mótshaldari leggur til.

5. Hverjum keppanda er ætlað vinnuborð með rafmagnshellu. Auk þess leggur mótshaldari til pönnukökupönnu, pönnukökuspaða, áhald til að hræra deigið með, ausu, skál, mæliílát (þ.e. lítersmál og mæliskeiðar), sigti, sleikju, vinnudisk, kökufat og klút.

6. Keppendum er heimilt að hafa eigin pönnukökupönnu, ausu, pönnukökuspaða og áhald til að hræra deigið með. Ekki er þó heimilt að nota rafmagnsþeytara.

7. Áður en keppni hefst eru rafmangshellur prófaðar, áhöldum raðað og allt tekið til í deigið.

8. Í lokin er 10 pönnukökunum skilað upprúlluðum með sykri en hinar tvíbrotnar í horn.

9. Keppni er ekki lokið fyrr en pönnukökum hefur verið komið fyrir á kökufati og gengið frá vinnuborði, áhöldum raðað og borðið þvegið.

10. Pönnukökubakstur er einstaklingsgrein og mega keppendur hvorki njóta aðstoðar annarra keppenda né hafa aðstoðarmann.

Stigatafla

1. Hraði og fjöldi – 25 stig
Fjöldi – 10 stig
Hraði – 15 stig
Stystur tími gefur fulla stigatölu, 1 stig dregst frá fyrir hverja byrjaða mínútu fram yfir.

2. Leikni – 25 stig
Örugg vinnubrögð – 5 stig
Umgengni á vinnusvæði meðan bakað er – 5 stig
Frágangur á pönnukökum – 5 stig
Frágangur á vinnusvæði – 5 stig
Frágangur uppskriftar – 5 stig

3. Útlit – 25 stig
Engin göt – 5 stig
Allar kökur rétt lagaðar – 5 stig
Allar kökur samlitar – 5 stig
Engin kaka hrá eða brennd – 5 stig
Engin kaka kekkjótt – 5 stig

4. Bragðgæði – 25 stig
Góðar pönnukökur gefa mest 25 stig
Sæmilegar pönnukökur gefa mest 15 stig
Slæmar pönnukökur gefa mest 5 stig


 



Verkefni UMFÍ

Unglingalandsmót
Landsmót
Landsmót
Göngum um Ísland
Leiðtogaskólinn
Frjálsíþróttaskólinn
Flott án fíknar
Forvarnadagurinn
Ungmenna- og tómstundabúðir
lm50_umsoknir_13_14_180px
Evrópa unga fólksins

Lotto
isafold

Sambandsaðilar