Fara á efnissvæði
09. júní 2026

Jenný sæmd starfsmerki UMFÍ

„Þetta var mjög óvænt, ég átti ekki von á þessu,“ segir Jenný Hólmsteinsdóttir, fyrrverandi formaður Héraðssambands Bolungarvíkur (HSB). Hún var sæmd starfsmerki UMFÍ á ársþingi héraðssambandsins sem fram fór undir lok maí. Jenný hætti sem formaður á þinginu eftir setu í mörg ár. Svana Kristín Guðbjartsdóttir tók við formennskunni í hennar stað. 

Metþátttaka var á þingið, sem var gott og gagnlegt, að sögn Jennýar. Þangað mættu Guðný Stefanía Stefánsdóttir, stjórnarkona í UMFÍ, og báðir svæðisfulltrúar Vestfjarða, þau Birna Hannesdóttir og Páll Janus Þórðarson. 

Nokkur breyting varð á stjórn HSB. Auk þess sem Jenný hætti gaf Helga Guðrún Magnúsdóttir ekki kost á sér áfram sem gjaldkeri. Svana, sem tók við formennsku, kom ný inn í stjórn ásamt Hönnu Þóreyju Björnsdóttur. Stjórnarfólk er kosið til tveggja ára í senn því þing HSB eru haldin á tveggja ára fresti. 

Þingið var gott, að sögn Jennýar. Mestur tími fór í breytingar á lögum og reglum enda kominn tími til, að hennar sögn. 

 

Á myndinni hér að ofan má sjá Guðnýju Stefaníu Stefánsdóttur, fulltrúa UMFÍ á þingi HSB, ásamt Jennýju.